Bandaríkjamenn hleruðu skrifstofur ESB Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 30. júní 2013 14:34 Í skjölunum kemur fram að bandaríska leyniþjónustan og þjóðaröryggisstofnun landsins hafi hlerað höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Washington, New York og víðar. MYND/GETTY
Forseti Evrópuþingsins, Martin Schulz, hefur farið fram á við bandarísk stjórnvöld að þau útskýri umfang símahlerana á helstu starfsstöðvum Evrópusambandsins. Greint er frá málinu í þýska miðlinum Der Spiegel en þar er vísað í gögn sem uppljóstrarinn Edward Snowden lak til fjölmiðla á dögunum. Í skjölunum kemur fram að bandaríska leyniþjónustan og þjóðaröryggisstofnun landsins hafi hlerað höfuðstöðvar Evrópusambandsins í Washington, New York og víðar. Ekki liggur fyrir hvaða upplýsingar komust í hendur leyniþjónustunnar en í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um málið kemur fram að bandarísk yfirvöld gætu hafa sóst eftir því að kynna sér afstöðu aðildarríkja Evrópusambandsins til viðskipta og hernaðarmála.Frá mótmælum í Þýskalandi. - „Yes We Scan“MYND/APLíklegt þykir að Snowden haldi enn til á alþjóðaflugvellinum í Moskvu. Hann hefur sótt um hæli í Ekvador en umsókn hans verður ekki tekin fyrir af þarlendum yfirvöldum fyrr en Snowden er kominn til landsins. Bandarísk yfirvöld hafa kært uppljóstrarann Edward Snowden fyrir njósnir, þjófnað og misnotkun opinberra eigna. Snowden á yfir höfði sér tíu ára fangelsisvist fyrir hvert brot. Varaforseti Bandaríkjanna, Joe Biden, hefur sett sig í samband við stjórvöld í Ekvador og farið fram á að Snowden verði framseldur til Bandaríkjanna komi hann þangað.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira