Talaði máli Snowden á þingi Evrópuráðsins 27. júní 2013 15:16
Ögmundur Jónasson tók upp málefni bandaríska uppljóstrarans Edwards Snowdens á þingi Evrópuráðsins í morgun og hvatti einstaklinga og ríkisstjórnir og Evrópuráðið sjálft til að taka upp hanskann fyrir „uppljóstrara í þágu lýðræðis“ að því er fram kemur í tilkynningu frá sendinefndinni. Þar segir að mál Snowdens komi öllum við, óháð landamærum, því upplýsingarnar sem bandarísk lögregluyfirvöld hafa krafið öll helstu fyrirtækin á internetinu, þar á meðal Google, Facebook, Skype og fleiri, að láta sér í té, væru persónuupplýsingar sem nota mætti til að kveða niður eðlilega lýðræðislega umræðu. Persónunjósnir af þessu tagi væru hrein ógn við sjálfar undirstöður réttarríkisins.Ögmundur Jónasson.Þá ræddi Ögmundur líka ofbeldisefni á netinu og sagði að verkefnið væri nú að taka djúpa málefnalega umræðu um þetta efni með það að leiðarljósi að sporna gegn því að ofbeldisiðnaðurinn þrengdi sér inn í líf barna eins og rannsóknir sýndu að væri að gerast. Að meðaltali væru börn að meðaltali 11 ára gömul þegar þau færu að horfa á ofbeldisfullt klámefni sem sölumenn væru orðnir naskir á að koma á framfæri við börn og ungmenni. Ögmundur hrósaði svo Evrópuráðinu sérstaklega fyrir að sinna vel málefnum barna og vísaði í því sambandi til vitundarvakningar um kynferðisofbeldi gagnvart börnum og sagði að áhrifa af frumkvæði Evrópuráðsins á þessu sviði gætti nú víða um lönd, þar á meðal á Íslandi þar sem sérstakt átak hefði verið gert í þessa veru.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Fleiri fréttir Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Sjá meira