Fulltrúar VG hafa áhyggjur af Hellisheiðarvirkjun Jóhannes Stefánsson skrifar 10. júní 2013 10:27 Katrín Jakobsdóttir segir tilefni til að skoða aðrar jarðvarmavirkjanir. Mynd/ Pjetur/Vilhelm
Fulltrúar VG í umhverfis- og samgöngunefnd annars vegar og atvinnuveganefnd hinsvegar hafa óskað eftir sameiginlegum fundi nefndanna vegna frétta Fréttablaðsins af vandræðum Hellisheiðavirkjunar. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir tilefni fundarins vera frétt Fréttablaðsins um að afköst Heillisheiðarvirkjunar væru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. „Í ljósi þess að umræðan um þessar jarðvarmavirkjanir hefur verið þannig að þarna sé í raun og veru sjálfbær nýting á ferðinni og síðan birtist þessi frétt er full ástæða fyrir okkur að rýna í og skoða hvað býr að baki. Þess vegna viljum við bara halda þennan sameinaða fund,“ segir Katrín Jakobsdóttir í samtali við Vísi. „Það þarf í raun að fara yfir þetta, hvað þetta þýði,“ segir Katrín. „í fyrsta lagi bara fyrir þessa virkjun. Þarna er verið að segja í raun og veru að það þurfi stórar framkvæmdir til viðbótar ef virkjunin á að geta staðið við þær áætlanir sem gerðar voru um orkuöflun. Síðan bara að skoða þetta mál í stærra samhengi, það er að segja hvort þessi nýting sé þá í raun og veru ekki eins sjálfbær og hingað til hefur verið talið þannig að við teljum fulla ástæðu til að tala við sérfræðinga og fá þeirra sjónarmið á málin. Það er auðvitað ljóst til að mynda að í nýtingarflokki nýrrar rammaáætlunar eru margar jarðvarmavirkjanir og þetta gefur auðvitað tilefni til þess að skoða það hvort að þar séu einhver ný gögn eða nýjar upplýsingar að koma fram um sjálfbærni þessarar nýtingar."
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Fleiri fréttir Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Sjá meira