Jóhanna talaði 11 sinnum um Sjálfstæðisflokkinn 1. febrúar 2013 16:40 Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar
Jóhanna Sigurðardóttir minntist á Sjálfstæðisflokkinn ellefu sinnum í setningarræðu sinni á Landsfundinum í dag. Á síðasta landsfundi minntist hún á flokkinn tuttugu sinnum í ræðu sinni. Það eru því tæplega helmingi færri tilvitnanir í Sjálfstæðisflokkinn á milli ára. Hér fyrir neðan má sjá tilvitnanirnar í ræðunni í dag:„Nú höfum við svart á hvítu, samanburðinn á ríkisstjórnarsamstarfi til vinsti, leiddu af Samfylkingunni og fjölda ríkisstjórna til hægri, leiddum af Sjálfstæðisflokknum."„Við höfum einfaldlega sýnt og sannað með verkum okkar, að við jafnaðarmenn vorum og erum traustsins verðir og að í okkar höndum er hag þjóðarinnar betur borgið en hjá Sjálfstæðisflokknum."„Í þessari meira en 140 klukkustunda umræðu sem þegar hefur farið fram á Alþingi hefur langmest verið rætt um auðlindaákvæðið og beina lýðræðið, en Sjálfstæðismenn hafa fram til þessa komið í veg fyrir að allar slíkar breytingar næðu fram að ganga."„Og hversvegna liggur okkur á að samþykkja þær nú á þessu þingi er spurt. Svarið er einfalt, því ef svo illa færi að Sjálfstæðismenn næðu hér völdum að loknum næstu kosningum þá er ekki á vísan að róa, að efnislega héldu tillögur stjórnlagaráðs í höndum þeirra, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn lýst því yfir að hann telji sig á engan hátt bundin af þeim þjóðarvilja sem birtist í þjóðaratkvæðagreiðslunni."„Slíkur burðarflokkur jafnaðarmanna er og verður forsenda þess að Sjálfstæðisflokknum verði haldið utan Stjórnarráðsins og að þar fái frjálslynd viðhorf jafnaðarmanna, náttúruverndar og umhverfis, lýðræðis og kvenfrelsis að njóta sín."„Samfylkingin er og verður áfram að vera, kjölfestan á miðju stjórnmálanna. Hún er eina von manna um raunverulegt mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn. Sundraður og veikur vinstrivængurinn hefur tryggt áratuga völd Sjálfstæðisflokksins og það hefur verið hlutskipti annarra flokka að laga sig að frjálshyggju tilburðum hans til að geta átt aðild að ríkisstjórn - þar til Samfylkingin varð til."„Smærri flokkar munu aldrei breyta neinu stórvægilegu í íslensku samfélagi í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, hvað sem líður göfugum markmiðum og krafti þess góða fólks sem þar leggst á sveif. "„Stóra stríðið í næstu kosningum verður því á milli Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar - af stærð og styrk þessara flokka mun framtíð íslensks samfélags ráðast."„Það ræðst af stærð Samfylkingarinnar hvort þjóðin fær sanngjarnan arð af auðlindum sínum eða ekki og hvort nýsamþykkt veiðigjald sem nema mun milljarðatugum á komandi árum mun renna til atvinnu uppbyggingar og samfélaglegra verkefna um allt land, eða beint í vasa útgerðarinnar eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur lofað."
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira