Alvarlegt slys í Esju 3. febrúar 2013 15:26 Bíll björgunarsveitar á leið á staðinn.
Slökkvilið og björgunarsveitir eru nú að störfum í Esju þar sem orðið hefur alvarlegt slys. Samkvæmt upplýsingum frá fulltrúa slökkviliðs hrapaði kona í fjallinu suður undir Hábungu. Þyrla Landhelgisgæslunnar kemst ekki á loft sökum slakra veðurskilyrða en er í viðbragðsstöðu. Engar upplýsingar liggja fyrir um meiðsli konunnar að svo stöddu.Uppfært klukkan 16:18Björgunarfólk er enn á leið á staðinn og sækist hægt vegna veðurs. Konan var hluti af þriggja manna gönguhóp sem sjálfur var hluti af stærri hóp. Sá hópur er nú kominn niður, en þrímenningarnir bíða að sögn slökkviliðsins í þó nokkurri hæð. Uppfært klukkan 16:55 Fyrstu fjallabjörgunarmenn eru nú að nálgast staðinn þar sem konan hrapaði en verulega erfiðar aðstæður eru á staðnum og sækist leiðin hægt enda um kletta með ís og snjó að fara. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu er búið að senda um 25 fjallamenn á staðinn auk þess sem verið að reyna að komast nálægt staðnum á tveimur vélsleðum, þremur fjórhjólum og snjóbíl. Ólíklegt er þó að þessi tæki komist nálægt staðnum. Í viðbót við þetta eru um tuttugu aðrir björgunarveitarmenn í biðstöðu við rætur Hátinds tilbúnir til að fara upp til aðstoðar ef á þarf að halda. Á þessari stundu er ekkert nánar vitað um ástand þess sem hrapaði. Í viðbót við erfiðar aðstæður á staðnum er mjög slæmt veður, snjókoma, hvasst og skyggni innan við eitt hundrað metrar.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún á opnum fundi nefndar um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira