„Mál þögguð niður og dómum hagrætt“

Þetta kemur fram í greininni „Lance Armstrong og ÍSÍ" sem Birgir skrifar í Fréttablaðinu í dag, en í greininni segist Birgir hafa litla trú á lyfjaeftirliti sem „möglunarlaust hlýðir afskiptasamri forystu".
„Ég er að bera á þá mjög alvarlegar sakir sem ég hef gert áður. Ég ber á þá íhlutun með niðurstöðu prófa," segir Birgir í samtali við Vísi, og vísar þá til máls sem upp kom árið 2001 þegar jákvætt sýni fannst hjá einstaklingi úr félagi þáverandi forseta ÍSÍ. „Þarna var um að ræða skjólstæðing forsetans og það varð bókstaflega allt vitlaust."
Birgir bætir því við að skjólstæðingurinn hafi tengst forstjóra ónefnds fyrirtækis, og hafi lögfræðideild fyrirtækisins farið í málið af fullri hörku. Þessi íhlutun hafi verið brot á alþjóðareglum, og í grein Birgis í dag segir hann Íþrótta- og Ólympíunefnd Íslands verið í sömu hættu og Alþjóðahjólreiðasambandið er nú, vegna lyfjamisnotkunarmáls hjólreiðamannsins Lance Armstrong. Sambandinu hafi verið hótað brottvísun frá Ólympíuleikum vegna málsins.
„Ég gef það í skyn að þetta megi alveg leika aftur. Það sat fólk eftir sem var tilbúið að taka þessu," segir Birgir, en hann sagði af sér sem formaður Lyfjaeftirlitsnefndarinnar í kjölfar málsins. „Þegar það er gert einu sinni, og fólk sem sat eftir var tilbúið að þegja, þá er þetta spurningin hversu mörg tilfellin hafa verið."
Tengdar fréttir

Sterar, brjóst og eistu - Morgunblaðið og New York Times
Ég umorða ummæli Lloyd Bentsen þegar Dan Quayle líkti sér við John F. Kennedy í kappræðum varaforsetaefnanna 1988 og segi við Moggann: You are no New York Times.

Lance Armstrong og ÍSÍ
Forseti ÍSÍ segir á vefsíðu Vísis 14. janúar að lyfjaeftirlit hér sé í góðum höndum, sem svar við grein minni í Fréttablaðinu sama dag. Ég er því ósammála og hef litla trú á lyfjaeftirliti sem möglunarlaust hlýðir afskiptasamri forystu.

Skammaður af sendiherra fyrir að skrifa um steranotkun Jóns Páls Sigmarssonar
Birgir Guðjónsson, sérfræðingur í lyflækningum og meltingarsjúkdómum, skrifar grein í Fréttablaðið og á Vísi í dag þar sem hann rekur "dapurlega stöðu lyfjafræðslu og eftirlits á landinu,“ eins og hann orðar það í grein sinni.

Forseti ÍSÍ: Lyfjaeftirlitið aldrei jafnvel skipað
Ólafur Rafnsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, segir engan afslátt gefinn hjá lyfjaeftirliti Íþróttasambands Íslands. Birgir Guðjónsson, sérfræðingur í lyflækningum, skýtur föstum skotum að Ólafi í aðsendum pistli í Fréttablaðinu í dag.