VG vill að starfsfólk njóti velgengni í rekstri fyrirtækja 26. janúar 2013 16:36 Ögmundur Jónasson, Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir.
Flokksráðsfundur Vinstri grænna, sem lauk í hádeginu, afgreiddi ályktanir um meðferð aðildarumsóknar að ESB, náttúruvernd og breytingar á útlendingalögum. Þá var svigrúmi til frekari fjárveitinga til ríkisstjórnarinnar fagnað og hvatt til að starfsmönnum fyrirtækja verði tryggður hlutur í arði vel rekinna fyrirtækja. Hér að neðan má sjá samantekt af ályktum fundarins sem fram fór í gær og lauk í dag.Meðferð ESB-málsins Fundur flokksráðs lýsir stuðningi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að stöðva frekari vinnu við mótun samningsafstöðu vegna viðræðnanna við Evrópusambandið, að ekki verði haldin ríkjaráðstefna um málefni Íslands á útmánuðum og að haldið verði á öðrum samskiptum þannig að ekki kalli á frekari ákvarðanatöku fram yfir kosningar. Því er beint til landsfundar, sem haldinn verður í febrúar, að taka afstöðu til framhalds málsins.Náttúran njóti vafans Flokksráðsfundurinn minnir á að ein af grunnstoðum hreyfingarinnar varðar umhverfi og náttúru. Fundurinn geldur varhug við áformum um olíuvinnslu á Drekasvæðinu.Um málefni umsækjenda um alþjóðlega vernd (hælisleitenda) Flokksráðfundurinn fagnar því að innanríkisráðherra hafi nýverið lagt fram frumvarp til breytinga á útlendingalögum. Fundurinn telur að þetta verði til þess að bragarbót verði gerð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd hér á landi.Álytkun um heilbrigðiskerfið Flokksráðsfundurinn fagnar því að nú sé loks farið að myndast svigrúm hjá ríkissjóði til að auka við fjárveitingar til heilbrigðiskerfisins eftir efnahagshrunið 2008. Vægt er til orða tekið þegar talað er um að kerfið sé veikburða eftir áralangt fjársvelti í tíð fyrri ríkisstjórna og tilraunir þeirra til einkavæðingar. Með áframhaldandi setu vinstristjórnar sem leggur áherslu á velferð verður hægt að búa þannig um heilbrigðiskerfið að það geti vaxið og dafnað og orðið við þeim kröfum sem velferðarsamfélag gerir til þess.Ályktun um náttúruvernd Flokksráðsfundurinn fagnar því að rammaáætlun hafi loksins verið samþykkt. Með rammaáætlun er komin forsenda til skynsamlegri auðlindanýtingar. Margar mikilvægar náttúruperlur eru nú í verndarflokki. Að sama skapi er gert ráð fyrir að hægt sé að virkja gríðarlega orku. Þessari heildarsýn hefði þurft að ná fyrir mörgum áratugum til að tryggja aðkomu almennings að ákvörðun um nýtingu auðlinda, og er hún því fagnaðarefni. Nauðsynlegt er að framhald vinnunnar byggi á forsendum sjálfbærrar þróunar með varúðarregluna að leiðarljósi. Mikilvægt er að tryggja að einkaaðilar geti ekki tekið einhliða ákvarðanir um nýtingu auðlinda sem ættu með réttu að vera eign þjóðarinnar allrar. Fundurinn bendir jafnframt á að Ísland býr ekki við orkuþurrð.Aðkoma starfsfólks að rekstri og arði fyrirtækja. Í ljósi þess að starfsfólk hefur ávallt þurft að taka á sig þrengingar og byrðar þegar illa gengur, en aðeins í undantekningartilfellum orðið aðnjótandi velgengni í rekstri fyrirtækja, sé nauðsynlegt að reyna að tryggja aðkomu starfsmanna að stjórnum fyrirtækja og hlutdeild í arði.
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira