Ekkert ferðaveður á Norðurlandi 27. janúar 2013 09:01
Mjög hvasst er á norðanverðu landinu og sömuleiðis á Vestfjörðum. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og ófært á Öxnadalsheiði og Möðrudalsöræfum. Á norðanverðu landinu er víða mjög hvasst, norðaustan 18-25 m/s og slydda eða rigning á láglendi en hríðarveður á fjallvegum. Á Norðvesturlandi er éljagangur, en snjókoma á Vestfjörðum og því takmarkað skyggni og þæfingur á vegum. Ekki er útlit fyrir að veður batni neitt að ráði á þessum slóðum í dag. Sunnantil er hvöss norðaustanátt, en yfirleitt úrkomulítið. Hvassar vindhviður við fjöll og á sunnanverðu Snæfellsnesi, hvessir talsvert í kvöld. Búast má við ísingu á vegum á SV-landi í kvöld og nótt, þegar léttir til.Færð og aðstæður Það er hálka á Sandskeiði en snjóþekja á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Suðurlandi eru víða hálkublettir eða hálka en þæfingsfærð er á Mosfellsheiði og Kjósarskarði. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Krapi er á Vatnaleið og á norðanverðu Snæfellsnesi en þungfært er á Fróðárheiði. Slæmt veður er á Vestfjörðum og víða mjög hvasst. Óveður er á flestum fjallvegum og ekkert ferðaveður. Þæfingsfærð er á Gemlufallsheiði en þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Hjallaháls. Þá er ófært á Hálfdán, Mikladal og Klettsháls.Óveður víða á Norðurlandi Á Norðurlandi er óveður mjög víða og ekkert ferðaveður en þó sérstaklega Norðaustanlands. Um norðvestanvert landið er ófært um Öxnadalsheiði en annars er hálka mjög víða eða snjóþekja en þó er þungfært á Þverárfjalli. Óveður er á Siglufjarðarvegi og í Norðurárdal í Skagafirði. Norðaustanlands er ófært um Víkurskarð, Hófaskarð og Hólasand en þæfingsfærð er á Grenivíkurvegi og Mývatnsöræfum. Víðast hvar annarstaðar er hálka eða snjóþekja og jafnvel éljagangur en eins og fyrr segir, alls ekkert ferðaveður.Vegurinn frá Fáskrúðsfirði og í bæinn auður Á Austurlandi er ófært á Möðrudalsöræfum, Hárekstaðaleið og Vopnafjarðarheiði. Flughált er í Jökulsárhlíð, á Hróarstunguvegi og frá Eiðum í Unaós en þungfært er á Vatnsskarði eystra og óveður. Óveður er einnig á Fjarðarheiði og er heiðin ófær. Ófært er einnig á Oddskarði en unnið er að mokstri. Hálka eða snjóþekja er á flestum öðrum vegum. Vegurinn með suðausturströndinni, allt frá Fáskrúðsfirði og suður um er auður.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Sjá meira