Dómurinn mikilvægt lóð á vogarskálarnar 29. janúar 2013 20:30 Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að önnur stór mál skipti máli fyrir losun fjármagnshaftanna. Mynd/ GVA
Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir alveg ljóst að niðurstaða EFTA dómstólsins í Icesave-málinu hafi jákvæð áhrif á losun fjármagnshafta. „Það er ekki hægt að segja nákvæmlega hver þau eru eða hversu mikil," segir hann. Það hafi verið orðið ljóst að hin fjárhagslega áhætta sem tengdist Icesavemálinu hafði minnkað verulega þegar ljóst varð hversu góðar heimturnar urðu úr þrotabúi Landsbankans. „Og það hafði að einhverju leyti þegar endurspeglast í lánshæfismatinu og viðurkennt af lánshæfismatsfyrirtækjum. En það er alveg ljóst að þetta hefur jákvæð áhrif á möguleika þessarar losunar," segir hann. Már segir ekki víst að lánshæfismatið muni hækka strax vegna Icesave-málsins. „En þar sem horfur eru neikvæðar þá kannski verða þær stöðugar. Og stöðugar horfur verða kannski jákvæðar og það hefur allt áhrif og við skynjum strax jákvæð áhrif," segir Már. Hann segir hins vegar að aðrir þættir skipti meira máli um losun fjármagnshafta. Til dæmis hvernig tekið verður á greiðslum úr þrotabúum, hvaða skilyrðum nauðasamningar verða bundnir og fleira. Almennt ástand á fjármagnsmörkuðum hér innanlands og erlendis skipti líka miklu máli, sem og efnahagsástand hér innanlands og erlendis. Már bendir á mikilvægi þess að ríkissjóður verði hallalaus árið 2014 þegar fer að reyna á losun fjármagnshaftanna. „Vegna þess að þegar höftin byrja að fara þá munu innlendir vextir hækka, allavega um hríð, og þá verður fjármögnun ríkissjóðs á innlendum markaði erfiðari," segir hann. Þess vegna sé mikilvægt að sem minnst þurfi að fjármagna ríkissjóð á þessum tíma. Fyrrgreind atriði hafi miklu meiri áhrif á losun hafta en Icesave-málið. „En þetta er hins vegar lóð á vogarskálarnar," segir hann.
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira