Í efri mörkum með brot af markaðnum Óli Kristján Ármannsson skrifar 5. júlí 2013 07:00 Skip í Reykjavíkurhöfn. Þótt komum skemmtiferðaskipa hingað hafi ekki fjölgað mikið hefur þróunin verið í þá átt að skipin sem sigla hingað eru stærri og taka fleiri farþega. Fréttablaðið/GVA
Hlutur Íslands á markaði skemmtiferðaskipa í Evrópu nam 0,7 prósentum, samkvæmt tölum sem norski ferðavefurinn Boarding.no hefur tekið saman. Árið 2012 sóttu landið heim 204 þúsund gestir með skemmtiferðaskipum. Til samanburðar má nefna að ríflega helmingi fleiri notuðu þennan ferðamáta til að heimsækja Danmörk og Svíþjóð. Noregur ber svo höfuð og herðar yfir önnur Norðurlönd þessum efnum með 2,5 milljónir gesta. Þá kemur fram í umfjöllun Boarding.no að langmestu vöxtur sé í þessari tegund ferðamennsku í Noregi. Á meðan fjöldi gesta skemmtiferðaskipa jókst í fyrra um 16 prósent í Evrópu þá var aukningin 28 prósent í Noregi.Ólafía Sveinsdóttir er deildarstjóri skipadeildar ferðaskrifstofunnar Atlantik.Fréttablaðið/VilhelmÓlafía Sveinsdóttir, deildarstjóri skipadeildar ferðaskrifstofunnar Atlantik, segir þróunina hér í þá átt að skipin sem hingað komi séu stærri, þótt komum skipa hafi ekki fjölgað mjög. „En þessi þróun hefur haft í för með sér mikla fjölgun ferðamanna í heild,“ segir hún. Áður voru hér algeng skip sem tóku færri en þúsund farþega. „Núna sjáum við þessar stóru tölur, frá þetta tólf og fjórtán hundruð farþegum og allt upp í þrjú þúsund farþega skip,“ segir Ólafía. Að auki sé svo vöxtur í minni lúxusskipum sem taki hundrað til tvöhundruð farþega. „Við erum með nokkur þannig lúxusskip sem flokkast allt upp í sex stjörnur.“ Þó að eftir miklu sé að slægjast á risastórum markaði skemmtiferðaskipa í Evrópu þar sem markaðshlutdeild Íslands er lítil, þá segir Ólafía að aðstæður hér setji okkur nokkrar skorður hvað varði auknar komur skipa. „Hér er skipatímabilið mjög stutt,“ segir Ólafía og bendir á að það nái í raun bara yfir júní, júlí og ágúst og fram í september, þótt unnið sé í því að fjölga ferðum hingað í maí. „Og það eru dagar sem eru þannig að skipin eru of mörg í einu.“ Sums staðar nálgist landið því efri mörkt í getu til að taka á móti skemmtiferðaskipum. „Það þýðir ekkert að fá þennan fjölda til landsins nema að hægt sé að bjóða þeim upp á þá þjónustu sem gestirnir vilja fá.“ Þannig þurfi að vera til staðar rútur og leiðsögumenn, veitingastaðir og önnur afþreying sem annar fjöldanum. „Og á sumum dögum erum við komin algjörlega að þolmörkum.“
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira