Gert að aka 550 km með heimilissorpið Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. janúar 2013 07:00 Óskað var eftir undanþágu frá starfsleyfi á meðan grunnvatnsmengun og þörf á þéttingu við urðunarsvæði Hulu á Skógasandi væri metin. Umhverfisráðuneytið hafnar því. Myndin er frá Álfsnesi.Fréttablaðið/Valli
Sveitarstjóri Mýrdalshrepps segir synjun um undanþágu til urðunar á Skógasandi þýða 400 kílómetra akstur með sorp í Álfsnes. Umhverfisráðuneytið segir sveitarfélagið hafa aðra möguleika til urðunar. Undanþágan sé ekki nauðsynleg. Ekki er ástæða til að framlengja undanþágu sem Hula bs. hefur haft til að urða úrgang í stöð sinni á Skógasandi í Rangárþingi eystra. Að því er segir í umsögn Umhverfisstofnunar í ágúst var í maí í fyrra veitt svigrúm til rannsóknar á grunnvatninu við urðunarstöðina. Sú athugun eigi að taka eitt ár og niðurstöður hennar eigi að vera grundvöllur að frekara áhættumati á staðnum. „Í ljósi framvindu málsins gerir Umhverfisstofnun ekki athugasemdir við að veitt verði tímabundin undanþága frá starfsleyfi fyrir urðunarstaðinn á Skógasandi 1. janúar 2014," segir stofnunin en umhverfisráðuneytið kemst að annarri niðurstöðu. Í fyrsta lagi sé ráðherra ekki heimilt að veita undanþágu frá kröfum hvað varði „jarðfræðilega tálma og botnþéttingu" og í öðru lagi þurfi ríkar ástæður fyrir undanþágu frá starfsleyfi. „Slíkur rökstuðningur geti til dæmis falist í því að um sé að ræða neyðarúrræði til förgunar úrgangs frá því svæði sem urðunarstaðurinn þjónar því allir aðrir farvegir til förgunar hafi verið fullkannaðir og reynst ómögulegir. Að mati ráðuneytisins liggur ekki fyrir að aðrar leiðir til förgunar úrgangs frá sveitarfélaginu séu ómögulegar," segir umhverfisráðuneytið og boðar að það muni hafna beiðni um undanþágu. Sveitarstjórn Mýrdalshrepps, sem er aðili að Hulu, kveðst mótmæla harðlega þessari fyrirætlun umhverfisráðuneytisins. „Það segir sig sjálft að ef ekki verður hægt að urða á þessum stað, sem frá náttúrunnar hendi er trúlega einn besti staðurinn sem völ er á til urðunar hér á landi, er ekki annar kostur í sjónmáli en að flytja úrgang frá okkur til Sorpu í Álfsnes," segir Ásgeir Magnússon sveitarstjóri. Skaftárhreppur er einnig aðili að Hulu. „Það er búið að loka sorpbrennslunni þeirra og þá höfðu þeir til vara að geta urðað heimilisúrgang á Skógasandi. Þetta þýðir akstur upp á 400 kílómetra fyrir okkur í Mýrdalshreppi og 550 kílómetra fyrir Skaftárhrepp með tilheyrandi mengun," segir Ásgeir. Sveitarstjórinn bendir þó á að ákvörðun umhverfisráðuneytisins sé enn ekki endanleg: „Alltaf er nú von til þess að ráðuneytið taki mark á því sem frá okkur kemur."
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira