Innlent

Óvænt fjölgun í rjúpnastofninum

Nanna Elísa skrifar
Rjúpunni hefur fjölgað um 47 prósent á milli ára samkvæmt tölum úr rjúpnatalningu.
Rjúpunni hefur fjölgað um 47 prósent á milli ára samkvæmt tölum úr rjúpnatalningu.

Rjúpnastofninn stækkar ef marka má tölur rjúpnatalningar Náttúrufræðistofnunar Íslands. Samkvæmt þeim var meðalfjölgun rjúpna 47 prósent á milli áranna 2012 og 2013.  Koma þessar niðurstöður á óvart því að þetta þýðir að fækkunarskeiði, sem hófst á vestanverðu landinu árið 2009, sé lokið. Fækkunarskeiðið stóð því  aðeins yfir í tæp þrjú ár en fyrri fækkunarskeið hafa varað í 5 til 7 ár. Rjúpum fjölgaði um allt land og var aðeins fækkun í stofninum á 4 af 42 svæðum sem talin voru.

Ástæður þess að stofninn er í vexti liggja ekki ljósar fyrir. Ólafur Karl Nielsen, vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir að það sé best að tjá sig sem minnst um ástæður fjölgunar þegar ekki liggja öll gögn fyrir. ,,Það er auðvitað alltaf mjög ánægjulegt ef rjúpum er að fjölga og þetta er mjög óvænt,“ segir hann aðspurður um skoðun sína á málinu. ,,Við ætlum að spá í ástæður fjölgunar í haust þegar við erum komin með útreikninga á afföllum og mat á veiði 2012. Við viljum hafa þetta eins rétt og hægt er og vangaveltur um hvað valdi verða að bíða.“

Íslenski rjúpnastofninn sveiflast mikið af náttúrulegum orsökum en síðustu áratugi hefur frekar orðið vart við fækkun í stofninum. Því lagði Náttúrustofnun til þess að lagt yrði á veiðibann árið 2003 og brást þáverandi umhverfisráðherra við því og sett var á veiðibann árið 2006. Þetta þekkja rjúpnaveiðimenn sem hafa, eftir að banninu var aflétt, aðeins getað veitt í takmarkaðan tíma á ári. Á síðasta ári var veiðitíminn aðeins 9 dagar.

Mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins verður ljóst í ágúst þegar varpárangur rjúpnastofnsins í sumar liggur fyrir.

Skýrsluna má nálgast hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×