Júlíus Vífill vildi funda vegna Þorbjargar Helgu Kristján Hjálmarsson skrifar 19. júlí 2013 17:17 Júlíus Vífill Ingvarsson, sem er lengst til vinstri á myndinni, vildi funda vegna viðtals við Þorbjörgu Helgu sem birtist í Nýju lífi í gær.
Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, vildi funda með Sjálfstæðismönnum í borginni vegna viðtalsins við Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur borgarfulltrúa sem birtist í Nýju lífi í gær. Vegna sumarleyfa tókst hins vegar ekki að blása til fundar. Samkvæmt heimildum Vísis sendi Júlíus Vífill tölvupóst í gærkvöldi á borgarfulltrúa, nefndarmenn, formann og varaformann Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, til að athuga hvort þeir gætu hist í dag vegna umræðu um þeirra hóp, eins og segir í tölvupóstinum. Var þá sérstaklega vísað til fréttar Ríkisútvarpsins af málinu. Vegna sumarfría var erfitt að boða til fundar en samkvæmt heimildum Vísis hitti Júlíus Vífill þrjá fulltrúa Sjálfstæðisflokksins yfir kaffibolla í dag. Viðtalið við Þorbjörgu Helgu í Nýju lífi vakti miklar og heitar umræður í gær. Brot úr viðtalinu birtist á Vísi í gær. "Ólafur F. var veikur maður og það vissu allir. Allir borgarfulltrúar misnotuðu aðstæður hans en við í Sjálfstæðisflokknum gengum skrefinu lengra en hinir með því að bjóða honum borgarstjórastólinn," sagði Þorbjörg Helga meðal annars. "Ég er enn miður mín og skammast mín fyrir að hafa tekið þátt í að gera Ólaf F. Magnússon að borgarstjóra í Reykjavík. Þegar það gerðist vorum við borgarfulltrúarnir sárir eftir REI-málið. Í því máli tókum við sannfæringuna fram fyrir liðsheild og við töldum okkur vera að vinna þjóðþrifamál, með því að stöðva yfirvald sem ætlaði að keyra málin í gegn. Þess vegna þótt okkur gríðarlega ósanngjart að missa meirihlutann í kjölfarið." Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið þar sem hann sagði vera aðför að Ólafi F. "Mér finnst þetta viðtal við Þorbjörgu dapurlegt og með hvaða hætti hún fjallar um Ólaf F. Magnússon, fyrir neðan allar hellur," sagði Vilhjálmur.
Mest lesið „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Innlent Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi Innlent Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Innlent Fleiri fréttir Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Sjá meira