Ríkharður Daða: Nú verður léttara að vinna næsta bikar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2013 19:08 Ríkharður Daðason, þjálfari Fram. Mynd/Anton
Ríkharður Daðason, þjálfari Fram, tók við liðinu á miðju tímabili af Þorvaldi Örlygssyni og í kvöld gerði hann Safamýrarliðið að bikarmeisturum í Laugardalnum. Þetta var fyrsti titill félagsins í 23 ár. „Við fórum inn í hálfleik í mjög erfiðari stöðu en við héldum trúnni. Ég sá þegar kviknaði á strákunum þegar við börðum á því að þetta væri ekki búið því það voru 45 mínútur eftir," sagði Ríkharður Daðason í viðtali við Arnar Björnsson í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport frá bikarúrslitaleik Fram og Stjörnunnar. Fram var 0-2 undir í hálfleik og náði síðan að jafna metin í bæði 2-2 og 3-3 áður en liðið tryggði sér bikarinn í vítakeppni. „Auðvitað fáum við þetta mikilvæga mark fljótlega í seinni hálfleik til að gefa okkur trúna. Þá var bara eins marks munur. Ég skal alveg játa það að þegar við vorum lentir 2-3 undir og það var lítið eftir þá stóð þetta tæpt. Við tókum gamlan reyndan miðvörð af velli sem var orðinn haltur og breyttum í þriggja manna vörn og settum allt undir. Sem betur fer fengum við þetta þriðja mark," sagði Ríkharður. En þjálfar Ríkharður Daðason Framliðið áfram? „Ég þarf að fá tilboð um að þjálfa liðið áfram. Það er ekki komið svo langt og svo er ég ekki löglegur þjálfari. Það verður bara að koma í ljós hvað verður," sagði Ríkharður sem á eftir að ná sér í nauðsynleg þjálfararéttindi. „Að sjálfsögðu vil ég þjálfa liðið áfram. Þetta er hópur sem getur gert stóra hluti og við erum búnir að spila best í sumar á móti bestu liðunum í deildinni. Þessi endurkoma sýnir það hvaða styrkur býr í hópnum og það eru bara forréttindi að fá að vinna með svona strákum og ég vil gjarnan halda því áfram," sagði Ríkharður. „Við getum sagt að það er búið að rjúfa langa eyðumerkurgöngu og þá verður léttara að vinna næsta bikar," sagði Ríkharður að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sjá meira