Erfitt að skipuleggja fjárhagslega framtíð 4. apríl 2013 19:52 Ingólfur Bender
Síðustu tólf mánuði hækkaði verðbólgan um tæp fimm prósent, vó þar þyngst mikil hækkun í febrúar sem er sú mesta síðan í nóvember 2008. Þessi mæling í febrúar kom á greiðsluseðlana nú í byrjun apríl og því sáu margir verðtryggðu húsnæðislánin sín rjúka upp um síðustu mánaðarmót. Hægt er að taka dæmi um ungt par sem tók verðtryggt húsnæðislán upp á 12 milljónir í ársbyrjun 2005. Nú í ársbyrjun 2013 er það komið upp í rúmar 18 milljónir. Hækkun verðbólgunnar í febrúar var 1.64% og því hækka eftirstöðvar lánsins um 1.51% á milli mánaða ef verið er að greiða af því. Það þýðir að lánið hækkaði frá 1. mars 2013 til 1. apríl 2013 um 277.000 kr. Lán ungu hjónanna er því komið upp í tæpar 18.636.000 milljónir núna í byrjun apríl. Afborgunin hækkað einnig, fór úr 86.600 þúsundum í mars upp í rúmar 88.000 kr. í apríl. Það munar um minna. Ingólfur Bender forstöðurmaður greiningar Íslandsbanka segir verðbólguna vissulega hafa neikvæð áhrif fyrir þá sem eru með verðtryggð húsnæðislán, hún þyngi skuldabyrðina og rýri eiginfjárstöðuna. „Við reiknum með því að það geti verið til skemmri tíma smá meiri hjöðnun á verðbólgunni en svona yfir næstu eitt til tvö árin erum við að horfa á verðbólgu sem er 3.5 til 4% sem er mjög mikil verðbólga og langt yfir verðbólgumarkmiði seðlabankans sem er 2.5%. Kemur sér afskaplega illa fyrir þessi heimili sem eru skuldsett," segir Ingólfur. Ingólfur segir verðbólguna hér alltof mikla og sveiflukennda og óstöðuleikinn geri það að verkum að það sé afskaplega erfitt fyrir fólk að skipuleggja sína fjárhagslegu framtíð. Hann segir verðbólguna þó ekki koma sér illa fyrir alla. „Það eru þeir sem eiga í lífeyrissjóðunum sem hagnast á þessu, eignir þeirra halda verðgildi sínu, þær hækka í verði. Þetta eru aðallega þeir sem eru búnir að safna í sjóð lengi, þetta eru eldri kynslóðirnar sem ná þessu á meðan yngri kynslóðirnar sem eru skuldsettastar líða fyrir verðbólguna á móti. Þetta er ákveðin tilfærsla á milli kynslóða sem á sér stað með mikilli verðbólgu."
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Rangar ákvarðanir hafi örugglega verið teknar Innlent Fleiri fréttir Seðlabankinn reyni í raun að reka velferðarstefnu Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Sjá meira