Húsbíll tókst á loft og endaði í skurði 27. júní 2012 04:45 Allar innréttingar og allt lauslegt í bílnum fór af stað þegar húsbíllinn fauk af veginum. Forvarnarfulltrúi brýnir fyrir fólki að kynna sér aðstæður í upplýsingasíma Vegagerðarinnar, 1777, áður en lagt er af stað í ferðalög.mynd/vís
Hjónin Vilhelm Guðbjartsson og Guðrún Ragnarsdóttir lentu í kröppum dansi á dögunum þegar þau óku milli Hofsóss og Siglufjarðar. Húsbíll þeirra tók á sig vindhviðu og valt að minnsta kosti tvær veltur út af veginum áður en hann staðnæmdist í skurði undir vegbrúninni. „Þessir sviptivindar komu okkur alveg að óvörum,“ segir Vilhelm um slysið. Hann er vanur bílstjóri og hefur ekið hópferðabílum í tugi ára. Hann segist hafa lent í ýmsu, en aldrei velt bíl eða endað utan vegar. „Maður veit að á svona svæði er varasamt að vera á ferðinni ef það er suðvestanátt.“ Vilhelm og Guðrún voru á leið á Siglufjörð og voru stödd rétt hjá Haganesvík þegar slysið átti sér stað. „Við keyrum þarna frá Hofsósi inn á Siglufjörð og það er strekkingshvasst en alveg þannig að það leit út fyrir að vera í lagi,“ segir Vilhelm. „Þegar við komum þarna í Fljótin fyrir ofan Haganesvík þá fáum við fyrstu hviðurnar á okkur og keyrum því mjög rólega. Við vorum ekki á nema 20 til 30 kílómetra hraða. Maður taldi að þetta mundi sleppa með því að fara svona rólega.“ Það dugði þó ekki. „Svo kemur svona heiftarlegur hnútur og leggur bílinn á hliðina og svo annar hnútur og þá fór bíllinn tvær eða þrjár veltur. Bíllinn endar svo á réttum kili og snýr upp í veginn með framendann ofan í skurði. Bíllinn hefur því snúist líka, sennilega bara í loftinu.“ Þeim varð ekki meint af en bíllinn er gjörónýtur. Húsbílar eins og þeirra eru skráðir fyrir fjórar manneskjur. Tvær verða því að sitja aftur í í húsinu sjálfu, í sætisólum. Þau hjón segja að varasamt gæti reynst að hafa farþega í bílnum því innréttingar og lausamunir gangi til, velti bíllinn eða lendi í árekstri. „Ef það hefðu verið farþegar aftur í…“ veltir Vilhelm fyrir sér. „Ég veit ekki hvernig það hefði farið. Ef maður hefði verið með barnabörnin til dæmis.“ Sigrún Þorsteinsdóttir, forvarnarfulltrúi hjá VÍS, segir mikilvægt að fólk kynni sér veðuraðstæður áður en lagt er af stað. „Ef meðalvindur er fimmtán metrar á sekúndu geta vindhviður farið upp í 24 til 26 metra á sekúndu. Þá verður fólk að athuga hvort það sé að aka meðfram fjöllum, þar sem vindurinn blæs niður með fjallinu og hviðurnar eru hvassari.“ Sigrún bendir á að húsbílar og hjólhýsi séu mjög létt miðað við hversu mikinn vind þau taka á sig. „Á hverju einasta ári eru húsbílar, fellihýsi og hjólhýsi að fjúka út af. Slys verða vegna þess á hverju sumri. Hjólhýsin splundrast alveg svakalega grípi þau mikinn vind og velti. Húsbílarnir geta gert það líka.“birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira