Innlent

Börkur dæmdur í hálfs árs fangelsi

Börkur Birgisson var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á skikkju héraðsdómara og kallaði hana „tussu". Börkur mætti ekki fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun að eigin ósk en síðast þegar hann mætti þangað reyndi ungur karlmaður að koma úlpu í hans hendur þvert á vilja lögreglunnar. Sá var handtekinn og verður líklega einnig ákærður fyrir brot gegn valdstjórn.

Börkur hefur einnig verið ákærður fyrir fjölda annarra brota, meðal annars fjárkúgun, ofbeldisbrot og fleira. Ekki er búið að rétta í því máli.

Þá er hann, ásamt félaga sínum, Annþóri Kristjáni Karlssyni, einnig grunaður um að hafa valdið samfanga sínum áverka sem leiddu hann til dauða.


Tengdar fréttir

Annþór og Börkur ekki áfram í einangrun

Lögreglan á Selfossi ætlar ekki að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni, sem eru grunaðir um að hafa veitt Sigurði Hólm Sigurðarsyni, samfanga sínum, banvæna áverka um miðjan maí síðastliðinn.

Krefst sex mánaða fangelsis yfir Berki

Sækjandi í málinu gegn Berki Birgissyni fer fram á sex mánaða fangelsi fyrir að hafa hrækt á dómara og kallað ókvæðisorðum. Aðalmeðferð í málinu fór fram í morgun.

Dómari segir Börk hafa verið ógnandi

"Hann var mjög ógnandi,“ sagði Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjaness um Börk Birgisson. Aðalmeðferð fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag yfir Berki, sem sakaður er um að hafa brotið gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á Söndru í vor. Þá var verið að úrskurða að Börkur skyldi sitja af sér eldri dóm eftir að hann hafði, á reynslulausn, verið sakaður um fjölda ofbeldisbrota.

Börkur viðurkennir að hafa hrækt á dómara

Börkur Birgisson viðurkennir að hafa hrækt á skikkju dómara í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum. Réttað er yfir Berki í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna þessa brots, sem flokkast undir brot gegn valdstjórninni. Dómarar í Reykjanesi lýstu sig vanhæfa til að dæma í málum hans eftir brotið og því var málið flutt til Reykjavíkur. Fréttavefur Morgunblaðsins segir að átök hafi orðið í réttinum í morgun þegar maður undir áhrifum reyndi að koma einhverskonar hlut að Berki þegar hann var í dómnum í fylgd fangavarða. Börkur er sakaður um fjölmörg ofbeldisbrot. Þar á meðal eru hann og Annþór Kristján Karlsson sakaðir um að hafa orðið samfanga sínum á Litla Hrauni að bana.

Úlpumaðurinn verður ákærður

Ekkert var í úlpunni sem maður reyndi að koma í hendur Barkar Birgissonar í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn lenti að auki í minniháttar átökum við lögregluna þegar hann hlýddi ekki fyrirmælum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×