Innlent

Karl afhenti lyklana

Konan hefur tekið við af Karli.
Konan hefur tekið við af Karli.
Karl Sigurbjörnsson, fráfarand biskup, afskrýddist biskupskápu sinni við athöfn við lok prestastefnu í Dómkirkjunni í dag. Hann afhenti svo Agnesi M. Sigurðardóttur nývígðum biskupi lykla embættisins. Agnes tekur svo formlega við störfum á biskupsstofu á mánudag. Sömuleiðis afhenti Karl henni hirðisstaf biskups sem var gjöf rússnesku kirkjunnar til embættisins og minnti hana í leiðinni á mikilvægi gestrisninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×