Arnór Atla: AG er komið til að vera | Eftirsjá að Jesper Nielsen Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. júlí 2012 07:30 Mynd / Stefán
Arnór Atlason, leikmaður AG Kaupmannahafnar og íslenska landsliðsins, segir mikla eftirsjá að Jesper Nielsen sem hættur er afskiptum af danska handknattleiksfélaginu. „Þetta er auðvitað blásið upp hægri vinstri og skrattinn málaður á vegginn alveg um leið. Jesper er hættur og það ætti að leggja meiri áherslu á hversu mikil eftirsjá sé af þessum manni. Það er ekkert smáræði sem hann hefur gert fyrir handboltann og mikil eftirsjá í því," segir Arnór um fjölmiðlaumfjöllun um fjárhagserfiðleika danska liðsisn og brotthvarf Nielsen. „Ég get vottað fyrir það líkt og aðrir leikmenn AG að okkur hafa borist laun í tæka tíð hvert einasta skipti síðustu tvö ár. Eina skiptið var um síðustu mánaðarmót þegar nokrum leikmönnum var tilkynnt að þeir fengu ekki bónusgreiðslur fyrr en mánaðarmótin á eftir. Við fengum að vita að vita að það yrði þannig þar sem AG væri að bíða eftir bónusgreiðslum frá EHF. Það er það eina sem hefur ekki borist í tæka tíð. Það er ekki eins og við eigum inni fleiri mánaðarlaun hjá félaginu," segir Arnór sem viðurkennir að óvissa sé í loftinu. „Það er einhver óvissa eftir að Jesper og fjölskylda hans sé farin. Ekkert stress en aðeins óþægilegt að vita af þessu. Ég hef engar áhyggjur. AG er komið til að vera og þetta flaggskip er ekkert að fara að sökkva," segir Arnór. Aðspurður hvort þeir Snorri Steinn Guðjónsson, sem báðir eru á samningi hjá félaginu, sofi vel þessa dagana brosir Arnór og segir: „Ef það færi illa myndum við bara finna okkur eitthvað annað."
Handbolti Mest lesið Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Golf Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Fótbolti Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira