Innlent

Sprengjumaður í gæsluvarðhald

Erla Hlynsdóttir skrifar
Mynd/Anton
Tæplega þrítugur karlmaður á Suðurnesjum hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að á heimili hans fannst rörasprengja og efni til sprengjugerðar. Maðurinn ógnaði sérsveitarmönnum með hnífi þegar þeir handsömuðu hann.

Lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu um undarlegt háttalag mannsins á samskiptavefnum Facebook.

Þar mátti finna myndir af manninum handleika skotvopn og myndir af sprengju og sprengjuefni.

Víkurfréttir birtu síðdegis myndir af Facebook síðu mannsins en hann hafði einnig sérstaklega myndað það þegar hann sprengdi fiskikar í loft upp.

Sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra fóru vopnaðir inn á heimilið mannsins um miðnættið í gær, þar sem var þar einn.

Hann ógnaði þeim með hnífi en þeir yfirbuguðu hann fljótt. Þeir yfirgáfu síðan íbúðina, með manninn, af ótta við sprengiefni á heimilinu.

Sprengjuefnið var svo fjarlægt, en þar fundust meðal annars púður, þræðir og blys, auk tilbúinnar rörasprengja.

Í ljós kom að byssunni, sem var 22. kalibera, og er í daglegu tali kölluð kindabyssa, var stolið árið 2006. Þá var maðurinn með nokkurt magn eggvopna á heimilinu og tvær eftirlíkingar af skammbyssum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var maðurinn hvorki undir áhrifum fíkniefna né áfengis þegar hann var handtekinn. Hann var í dag leiddur fyrir Héraðsdóm Reykjaness þar sem samþykkt var beiðni um gæsluvarðhald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×