Úlpumaðurinn verður ákærður 22. júní 2012 16:22 Börkur Birgisson leiddur fyrir dómara í morgun.
Ekkert var í úlpunni sem maður reyndi að koma í hendur Barkar Birgissonar í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn lenti að auki í minniháttar átökum við lögregluna þegar hann hlýddi ekki fyrirmælum. Það var í morgun sem lögreglan ætlaði að færa Börk fyrir dómara vegna ákæru um brot gegn valdstjórn þar sem hann á að hafa kallað dómara illum nöfnum auk þess sem hann hrækti á skikkju hennar. Þegar lögreglan kom með hann í húsið kom aðvífandi karlmaður sem hugðist rétta Berki úlpu. Lögreglan kom í veg fyrir það en maðurinn veðraðist þá allur upp og lenti í átökum við lögregluna. Hann var þá yfirbugaður og svo handtekinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var ekkert ólögmætt í úlpunni og ekki ljóst hvað manninum gekk til, en hann er í annarlegu ástandi og er enn að sofa úr sér vímuna. Málið er litið afar alvarlegum augum og verður ekki lokið með sektargreiðslum. Þannig verður hann líklegast ákærður fyrir brot gegn valdstjórn, líkt og félagi hans Börkur, auk þess sem hann verður meðal annars ákærður fyrir að hafa brotið gegn lögreglusamþykktum þar sem hann hlýddi ekki fyrirmælum lögreglu. Börkur er að auki ákærður fyrir fjölmörg brot, þar á meðal fyrir ofbeldi, kúgun og fleira. Þá er félagi hans, Annþór Kristján Karlsson einnig ákærður fyrir sömu brot.
Mest lesið Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Innlent Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ Innlent Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Innlent Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Fleiri fréttir Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Sjá meira