Kaldhæðnislegt ef femínistar myndu krefjast afsagnar Jóhönnu BBI skrifar 22. júní 2012 20:34 Steinunn Rögnvaldsdóttir.
Það væri afar kaldhæðnislegt ef Femínistafélag Íslands kallaði eftir afsögn fyrsta kvenkyns forsætisráðherra íslands þegar ráðherrar hafa brotið jafnréttislög á undan henni og komist upp með það án þess að þurfa að segja af sér. Þetta segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, ráðskona feministafélagsins. Á miðvikudaginn var komst héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að Jóhanna Sigurðardóttir hefði brotið jafnréttislög þegar hún skipaði karlmann sem skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu og gekk þar með fram hjá fjórum jafnhæfum konum við skipunina. Steinunn dregur ekki dul á að alvarlegt sé þegar forsætisráðherra brýtur jafnréttislög. Þar að auki telur hún viðbrögð Jóhönnu við niðurstöðunni frekar slæm. Hins vegar bendir hún á að ljósið í myrkrinu sé að Jóhanna baðst afsökunar í Fréttablaðinu í dag. Það finnst Steinunni merki um auðmýkt. Steinunn segir sorglegt hve algengt er að ráðherrar brjóti jafnréttislög. Hún nefnir tvö dæmi um ráðherra máli sínu til stuðnings, annars vegar þegar Björn Bjarnason gekk fram hjá hæfnismati og hins vegar þegar Árni Magnússon braut jafnréttislög. Steinunn býst ekki við að Femínistafélag Íslands álykti um brot Jóhönnu á jafnréttislögunum. Hún minnir á að félagið ályktar ekki um allt sem kemur fyrir í jafnréttisbaráttunni. Steinnunn var í viðtali í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni.
Mest lesið Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Ræningjar fjölmenntu með byssur og haka í skartgripabúð Erlent Dróna- og skuggastríð í Evrópu: Hvað gengur Rússum til og hvað getur NATO gert? Erlent Sigar hernum á „hryðjuverkamenn“ í Portland Erlent Drónaútgerð?: Þingmaður hefur áhyggjur af rússneskum skipum við Færeyjar Erlent „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Innlent Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Innlent Musk, Thiel og Andrés nefndir í nýjum skjölum Epsteins Erlent Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Innlent Fleiri fréttir Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Skútu rak alla leið frá Englandi að Skaftafellsfjöru Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Tíu gistu í fangageymslu og þar af tveir „peruölvaðir“ „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið „Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Sjá meira