Hjúkrunarfræðingar fengu ekki fund með forsætisráðherra Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. desember 2012 14:34 Starfsfólk hjartadeildar Landspítalans. Mynd/ Vilhelm. „
Þetta eru ekki einhverjar skipulagðar hópuppsagnir," segir Ragnheiður Gunnarsdóttir, varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. RÚV greindi frá því í hádegisfréttum sínum að tugir hjúkrunarfræðinga hefðu sagt upp störfum á Landspítalanum á föstudaginn. Ragnheiður segir að þessar uppsagnir hafi ekki verið gerðar í samráði við félagið og því viti hún ekki hversu margir hafi sagt upp. „Það er bara komin afskaplega mikil þreyta í hjúkrunarfræðinga og við í stjórninni höfum fundað með hjúkrunarfræðingum og við finnum afskaplega mikla þreytu út af meira vinnuálagi og það má alveg segja það að það virðist halla á okkur þegar kemur að því hvernig ríkið ætlar að raða fólki eftir menntun," segir Ragnheiður. Ragnheiður segir að hjúkrunarfræðingar hafi ekki fengið að taka þátt í viðræðum með stjórnvöldum um kjaramál. BHM og ASÍ hafi fengið fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Hjúkrunarfræðingar hafi óskað eftir því að fá að taka þátt í þeim viðræðum en ekki fengið aðkomu að því. Hún segir að Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hafi aftur á móti sýnt málstað hjúkrunarfræðinga skilning. Ragnheiður bendir á að það sé friðarskylda hjá hjúkrunarfræðingum. Í henni felst að hjúkrunarfræðingar geta ekki gripið til verkfalls. Ragnheiður segir að hjúkrun sé að verða meira og minna dagvinnustétt. „Af þvi að það er verið að breyta mörgum deildum í dagdeildir og verið að sinna svo mörgum verkefnum á dagdeildarbasis," segir hún. Þetta sé góð þróun en að sama skapi geti vinnuveitandinn ekki sagt að hjúkrunarfræðingar taki stærsta hluta launa sinna í gegnum vaktavinnu.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Sjá meira