Kæra Landsnet fyrir lögbrot Kolbeinn skrifar 30. nóvember 2012 08:00 Forstjóri Norðuráls segir mikla hagræðingu hafa náðst í flutningskerfi Landsnets, meðal annars með virkjunum á Hellisheiði. Það skili sér ekki í lægra verði, eins og lög geri ráð fyrir.fréttablaðið/gva fréttablaðið/gva
Samál, Samtök álframleiðenda, hafa kært hækkun Landsnets á flutningstaxta til úrskurðarnefndar raforkumála. Orkustofnun hafði samþykkt breytingar á tekjumörkun fyrirtækisins og sú ákvörðun er kærð, en fyrirtækið segir að hún stangist á við raforkulög. Búist er við úrskurði nefndarinnar fyrir áramót. Landsnet hefur lagt til að verð á flutningi á raforku til dreifiveitna, og þar með almennings, hækki um níu prósent og um tuttugu prósent til stórnotenda. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samáls, segir að Landsnet hafi hækkað taxta sinn gríðarlega mikið frá því að fyrirtækið var stofnað. „Frá því að Landsnet var stofnað árið 2005 hefur flutningstaxti á hverja megavattsstund gagnvart stórnotendum hækkað um nærri 160 prósent, sé miðað við íslensku krónuna. Á sama tíma hefur flutningskostnaður fyrirtækisins, það er að segja allt annað en fjármagnskostnaður, lækkað um tvö prósent í krónum. Gagnvart almennum notendum er hækkunin um 44 prósent.“ Flutningstaxtinn er í dollurum gagnvart stórnotendum. Þorsteinn segir það gefa svipaða mynd; hækkunin í dollurum sé um 30 prósent, en lækkunin á flutningskostnaði fyrir Landsnet í dollar sé á sama tíma 53 prósent. Í raforkulögum er ákvæði um tekjumörk sem sett eru yfir ákveðið tímabil og gjaldskrá verður að miðast við. „Markmið með setningu tekjumarka er að hvetja til hagræðingar í rekstri flutningsfyrirtækisins og tryggja að tekjur þess séu í samræmi við kostnað við þá þjónustu sem því er falið að veita, að teknu tilliti til arðsemi.“ Þessa grein laganna telur Samál að Landsnet brjóti. Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir að mikil hagræðing hafi náðst í flutningskerfinu með stórnotendum og nýjum virkjunum, svo sem Hellisheiðarvirkjunum og verulegri stækkun á Grundartanga. Því hafi mátt búast við lækkun gjaldskrár Landsnets, en ekki hækkun eins og raunin varð. „Lög gera ráð fyrir að hagræðing í rekstri eigi að skila sér til neytenda, en það hefur ekki gerst. Þetta er milljarða skattlagning á notendur sem er ekki heimil samkvæmt lögum og er í engu samræmi við rekstrarkostnað Landsnets.“
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Sjá meira