VG hlynnt en Samfó efins KÓP skrifar 30. nóvember 2012 08:00
Þingflokkar stjórnarflokkanna funduðu í gærkvöldi um frumvarp um fiskveiðistjórnun. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins samþykkti þingflokkur Vinstri grænna að leggja frumvarpið fram, en Samfylkingin vill skoða ákveðin atriði þess innan ríkisstjórnar. Málið verður rætt á ríkisstjórnarfundi í dag og stefnt er að því að leggja það fram í kjölfarið. Það er ekki seinna vænna því frestur til að leggja fram mál á Alþingi rennur út í dag. Eftir það þarf að veita afbrigði til að mál séu tekin á dagskrá. Þá eru aðeins eftir 38 fundadagar á Alþingi, samkvæmt áætlun, að deginum í dag meðtöldum. Heimildir Fréttablaðsins herma að frumvarpið, sem Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra leggur fram, sé óbreytt í grundvallaratriðum frá því sem var frestað á síðasta þingi. Þingflokkarnir hafa ekki séð frumvarpið í heild sinni, en þau atriði sem vitað er að ágreiningur er um hafa verið kynnt. Á meðal þess sem deilt er um er hve byggðapottar eiga að vera stórir. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, og Ólína Þorvarðardóttir Samfylkingunni hafa bæði lýst yfir andstöðu við ákveðna þætti frumvarpsins, ekki síst byggðatengingu. Þær raddir gerast æ háværari að ríkisstjórnin sé einfaldlega fallin á tíma – og stuðningi – til að ljúka málinu. Hún hefur ekki lengur þingmeirihluta, en aðeins 31 þingmaður er í stjórnarflokkunum. Þá bíða fjölmörg stór mál afgreiðslu þingsins og ljóst þykir að forgangsraða þurfi þeim. Þau náist ekki öll í gegn. Innan Samfylkingarinnar hefur, samkvæmt heimildum blaðsins, sú skoðun verið uppi að frumvarpið sé fulllangt frá því sem lagt var upp með í stjórnarsáttmála. Á það ekki síst við um aðgang að greininni.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Sjá meira