Innlent

Nætursund á Jónsmessunni

GAR skrifar
Gæti fengið næturgesti sumarið 2013.
Gæti fengið næturgesti sumarið 2013.
Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hefur ákveðið að láta skoða næturopnun sundlauga borgarinnar um og yfir dagana í kringum Jónsmessunótt næsta sumar.

„Íbúar Reykjavíkur geti því sannanlega velt sér upp úr dögginni. Óskar ráðið eftir tillögu frá framkvæmdastjóra að útfærslu, einkum hvað varðar starfsmannahald og aðgangseyri á meðan á nætursundi stendur, en stefnt sé að því að aðgangseyrir standi straum af kostnaði við opnun,“ segir í samþykkt íþróttaráðs sem kveðst í þessum sambandi einkum horfa til Laugardalslaugar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×