Farþegum fjölgaði um 47 vagna á dag GAR skrifar 29. nóvember 2012 08:00
Nærri fjörutíu þúsund farþegar að meðaltali notuðu þjónustu Strætó á hverjum degi í október. Daglegum farþegum fjölgaði að meðaltali um 4.264 á virkum dögum frá því síðast var talið í október í fyrra. „Ef öll þessi innstig yrðu á sama tíma á deginum þyrfti um 47 strætisvagna til að flytja þá farþega," segir í skýrslu um farþegatalningu Strætó í október. Samtals voru farþegar Strætó nú í október 1.015.172 og hafði fjölgað um 11,9 prósent frá í fyrra. Mun það vera í fyrsta skipti sem farþegar Strætó eru fleiri en ein milljón í október. Þessar tölur byggja á ítarlegri talningu á farþegum í og úr hverjum vagni við allar biðstöðvar í október. „Það er því ljóst að íbúar höfuðborgarsvæðisins eru aftur að svara ákalli eigenda Strætó bs. um aukna notkun og er því óhætt að segja að boltanum sé áfram varpað yfir til eiganda Strætó bs. að svara ákalli um aukna þjónustu og þá kannski helst í fleiri og stærri vögnum," segir í skýrslunni. Strætó gerir einnig svokallaða greiðslugreiningu á farþegafjöldanum alla mánuði ársins. Í skýrslunni kemur fram að þessi greining staðfesti sömu þróun og sýni samtals 14,1 prósents aukningu farþega það sem af er árinu. „Ef fram fer sem horfir mun Strætó bs. flytja rúmlega tíu milljónir farþega í ár," segir í skýrslunni. Fjölgunin er að hluta til sögð hafa verið fyrirsjáanleg þar sem þjónustan var aukin með fleiri ferðum og aukinni tíðni. Þrátt fyrir að Strætó hafi bætt við svokölluðum liðvögnum hefur flutningsgetan ekki annað eftirspurn á sumum leiðum á háannatímum. Bæði leið 1 og 6 hafi iðulega þurft að skilja farþega eftir þar sem vagnarnir voru fullir. „Það að farþegum er enn þá að fjölga mest á háannatíma er farið að valda verulegum vandræðum, einkum vegna þess hversu mikinn vagnafjölda þarf að senda aukalega í akstur á morgnana og nú einnig seinnipart dags," segir í skýrslu Strætó. Af einstökum leiðum má nefna að aukningin nú í október var 51 prósent í innanbæjarakstri Strætó í Hafnarfirði. Er það þakkað breyttu leiðakerfi þar í samvinnu við bæjaryfirvöld. Rúmlega 100 prósenta aukning hefur verið hjá leið 18 á síðustu tveimur árum. Sá vagn ekur í Grafarholt og hefur verið tengdur Grafarvogi og Mosfellsbæ auk þess sem aksturstíðnin hefur verið aukin.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira