Fá betri mat á kennarastofurnar GAR skrifar 27. nóvember 2012 08:00 Grunnskólarnir í Hafnarfirði fá mat fyrir nemendur, kennara og annað starfsfólk frá fyrirtækinu skólamat.
Gera á bragarbót á mötuneytismálum kennara í grunnskólum Hafnarfjarðar. Þeir kvarta yfir því að fá ekki jafngóðan mat og aðrir bæjarstarfsmenn og að þurfa að matast með nemendum sínum. Bæjarstjórinn ákvað fyrir þremur vikum að gerð yrði úttekt á máltíðum í skólunum og boðaði til fundar með fulltrúum allra sem tengjast málinu. Fundurinn fór fram í síðustu viku. Magnús Baldursson, fræðslustjóri Hafnarfjarðar, segir að niðurstaðan hafi verið sú að fyrirtækið Skólamatur meti hvað það þýði að tryggja að matur sé afgreiddur inni á kennarastofum svo kennararnir þurfi ekki að sækja hann í mötuneyti nemenda. „Og hugsanlega hafa eitthvað meira utan um þann hluta matarins, meira krydd og salatbar og slíkt. Eitthvað viðameira en er fyrir nemendur,“ segir Magnús. Tilboð er fengið í úttekt á mötuneytismálunum en Magnús segir hana ekki hefjast fyrr en á nýju ári. „Ég geri ráð fyrir að þeir muni meta alla matseðla og fara í grunnskólana og skoða aðstæður,“ segir hann. „Við leggjum áherslu á að fólki líði vel í vinnunni og við vitum að matar- og mötuneytismál skipta miklu máli til að fólki líði vel á vinnustöðum.“
Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Fleiri fréttir Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Sjá meira