Nýtt kerfi tryggir meira úrval í ÁTVR Magnús skrifar 27. nóvember 2012 08:00 Sigrún Ósk Sigurðardóttir
StjórnsýslaNýtt vöruvalskerfi hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR), á að tryggja fjölbreyttara vöruúrval í vínbúðum landsins. Með nýja kerfinu geta vínbúðir boðið upp á 20 sérstakar vörur til að mæta staðbundinni eftirspurn í nágrenni hverrar og einnar. „Þetta gefur okkur tækifæri á meiri sveigjanleika. Skýrasta dæmið eru vörur sem verða skyndilega vinsælar eins og til dæmis nýir íslenskir bjórar. Við höfum ekki haft neitt kerfi til að mæta þeirri eftirspurn almennilega fyrr en nú,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. Samkvæmt reglugerð um vöruval í Vínbúðunum er þeim skipt í þrjá flokka: minni vínbúðir, svæðisbúðir og stærri vínbúðir. Vöruúrval ræðst svo af stærðarflokki vínbúðanna. Í gegnum svokallaðan sérflokk vara hafa einstakar vínbúðir getað tekið inn óhefðbundnar vörur til tímabundinnar sölu. Þar til í sumar gátu einstakar vínbúðir sömuleiðis boðið upp á vörur sem framleiddar voru í nágrenni þeirra í gegnum reglu um svokölluð nærsvæði. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gerði hins vegar nýverið athugasemd við nærsvæðiskerfið á þeim forsendum að í því væri fólgin mismunun og var það fellt úr reglugerð í kjölfarið. „Nýja kerfið um staðbundna eftirspurn var sett á fót eftir að athugasemdin kom frá ESA en það var ekki hugsað sem einhver krókur á móti bragði. Í nýja kerfinu er hægt að velja allar vörur, innlendar sem erlendar, svo það er engin mismunun fólgin í því,“ segir Sigrún og bætir við að einstakar búðir þurfi að sækja um að fá vörur í gegnum nýja kerfið. Að tveimur mánuðum liðnum er skoðað hvort næg eftirspurn sé eftir henni, ef svo reynist ekki vera er hún tekin út.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Fleiri fréttir Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira