Innlent

Guðni: Ólafur er að uppskera þakklæti þjóðar sinnar

BBI skrifar
Guðni Ágústsson
Guðni Ágústsson
Guðni Ágústsson er mjög ánægður með fyrstu tölur úr forsetakosningunum. „Það er glæsilegt að fá helming þjóðar sinnar á bak við sig í kosningu. Ólafur er að vinna góðan sigur," segir Guðni sem var meðal þeirra sem skoruðu á Ólaf að bjóða sig fram aftur.

Þó Guðni vilji ekki eigna sér heiðurinn af því ef Ólafur fær að sitja áfram á Bessastöðum þá viðurkennir hann að undirskriftasöfnunin sem hann stóð fyrir hafi haft mikil áhrif á að Ólafur bauð sig aftur fram. „Það er engin spurning."

„Þó margt hafi verið fundið gegn framboði Ólafs hefur hann staðið sig vel á Bessastöðum og unnið þjóðinni í haginn. Hann er að uppskera þakklæti þjóðar sinnar fyrir það," segir Guðni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×