Lífið

Netið vinsæll skiptibókamarkaður hjá nemum

Vignir segir alla græða á að eiga viðskipti í gegnum skiptibokamarkadur.is þar sem engin umboðslaun eða gjöld eru tekin fyrir sölu á bókum.
Vignir segir alla græða á að eiga viðskipti í gegnum skiptibokamarkadur.is þar sem engin umboðslaun eða gjöld eru tekin fyrir sölu á bókum. Fréttablaðið/Pjetur
„Þetta er klárlega vinsælasta síðan sinnar tegundar en við erum með tæplega 20.000 notendur og fer fjölgandi," segir Vignir Már Lýðsson sem stendur á bakvið síðuna Skiptibokamarkadur.is ásamt Val Þráinssyni.

Á Skiptibokamarkadur.is má finna yfir 10.000 titla af námsbókum til kaups og sölu fyrir framhalds- og háskólanema á hagstæðara verði en á venjulegum skiptibókamörkuðum. „Það græða allir hjá okkur því bæði er fólk að fá meira fyrir bækurnar sem það selur og borga minna fyrir þær sem það kaupir þar sem það eru engin umboðslaun eins og á venjulegum mörkuðum," segir Vignir en um 8000 bækur seljast á síðunni árlega og er meðalverðið í kringum 4.000 krónur. Miðað við það er ársveltan hjá þeim um 32 milljónir króna.

Vignir og Valur eru nú að vinna í nýrri síðu fyrir bókaskiptin sem verður enn stærri og veigameiri, jafnframt stefna þeir á að búa til samskonar síðu í Hollandi þar sem Valur hefur stundað mastersnám undanfarin ár.

Til eru fleiri álíka vefsíður á netinu þó engin sé jafn stór og skiptibokamarkadur.is. Nýjust er síðan skipta.is sem var sett á fót af þeim Kristjáni Inga Mikaelssyni og Ragnari Þór Valgeirssyni, nemendum í Verzló. „Við opnuðum síðna 28.júlí og erum þegar með yfir 500 notendur og 840 bækur inní kerfinu," segir Kristján Ingi.

Nemendur hafa brugðið á ýmis ráð til að komast hjá umboðslaunum verslanna við kaup og sölu á bókum sínum og meðal annars hefur verið vinsælt að auglýsa bækur á sölusíðunni bland.is auk þess sem Facebook hefur komið sterkt inn. - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.