Hafa vart undan að tína rusl í hrauninu 27. júní 2012 05:45 Þessum hljóðkútum var stolið við álverið, einhver verðmæti voru tekin úr þeim en afganginum var sturtað niður í hraunið.
Árvakur lesandi sendi Fréttablaðinu ábendingu um mikið rusl við Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði. „Þetta eru hljóðkútar sem var stolið af geymslusvæðinu við álverið. Einhver verðmæti voru tekin úr kútunum og hratinu svo kastað þarna. En þetta var hreinsað í síðustu viku,“ segir Sigurður Páll Harðarson, sviðstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Hafnarfjarðarbæjar. Sigurður segir að þetta sé ekki í eina skiptið sem rusli sé hent í hraunið. „Ég held að það sé lítill hluti fólks sem gerir þetta en það eru alltaf einhverjir sem láta freistast.“ Björn Hilmarsson, garðyrkjustjóri Hafnarfjarðar og yfirmaður þjónustumiðstöðvarinnar, segir rusl í hrauninu viðvarandi vandamál. „Þetta er rosalega algengt og búið að standa lengi yfir. Við reynum að fara reglulega í upplandið og tína drasl en það er alveg ótrúlegt hverju er hent. Við reynum að fara allavega aðra hvora viku yfir sumartímann og kíkja á þetta.“ Björn segir að auðvelt ætti að vera fyrir fólk að koma ruslinu fyrir á öðrum og viðeigandi stöðum. „Það er ótrúlegt hvað fólk virðist leggja á sig til að fara í skjóli myrkurs til þess að losa rusl í gjótur hingað og þangað. Oft og tíðum er hægt að losna við þetta dót frítt hjá Gámaþjónustunni eða Sorpu.“ Björn segir nær engin takmörk fyrir því sem fólk lætur frá sér í hraunið. „Við erum að hirða alls kyns dót, sófasett og fleira. Á sínum tíma voru þetta líka bílhræ og jafnvel rafgeymar. Stundum hefur líka verið kveikt í bílum þarna.“ Við slík tilfelli þarf að koma vinnuvélum á svæðið til að hreinsa ruslið upp. „Stundum þarf að fá kranabíl til að hirða upp draslið, þegar um stærra og þyngra dót er að ræða. Maður skilur ekki hvernig sumt draslið hefur komist á staðinn nema með öðrum vörubílum.“ Björn segist undrandi á því hvernig fólk virðist hugsa. „Ef þú ert laus við þitt drasl, þá ert þú bara stikkfrí sama þó því sé hent í fallega hraungjótu. Þetta er alveg ótrúlegt.“katrin@frettabladid.is
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira