Innlent

Vilja skýringu á boðsferð WOW

Þrír embættismenn á vegum borgarinnar þáðu boðsferð WOW til Parísar.
Þrír embættismenn á vegum borgarinnar þáðu boðsferð WOW til Parísar.
Fulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks í borgarráði hafa óskað eftir áliti innri endurskoðanda á boðsferð flugfélagsins WOW Air með hliðsjón af siðareglum og góðum starfsháttum kjörinna fulltrúa og embættismanna borgarinnar.

Fyrirspurnin var lögð fram á borgarráðsfundi fyrir helgi í ljósi fréttaflutnings um að Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs borgarinnar, og tveir embættismenn sviðsins hafi þegið boðsferð WOW Air til Parísar í síðustu viku. Þá er óskað eftir greinargerð frá borginni um ástæður og aðdraganda ferðalagsins. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×