Innlent

Fíkniefni falin í gasgrilli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fíkniefnasali var handtekinn og kannabisefni haldlögð í sölueiningum sem fundust við húsleit á heimili félaga hans.

Í gasgrilli á bak við húsið fannst kannabisefni og við frekari leit fundust á annan tug poka með kannabisefnum í garði hússins, tilbúnir til sölu. Maðurinn, sem er innan við tvítugt, játaði að eiga efnin og einnig sölu fíkniefna, eftir að hann hafði verið handtekinn og færður til skýrslutöku á lögreglustöð.

Þá haldlagði lögreglan talsvert magn af sveppum sem fundust við húsleit hjá öðrum karlmanni í umdæminu. Sá síðarnefndi, sem á þrítugsaldri, var einnig með sýnapoka og vog í fórum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×