Kjörgögnum verði eytt Kolbeinn skrifar 27. nóvember 2012 08:00 Höfnun beiðni Rósarinnar um kjörgögn byggir á reglum um val á framboðslista sem samþykktar voru á flokksstjórnarfundi árið 2012.fréttablaðið/anton
Eyða ber öllum kjörgögnum um leið og kosningum á lista lýkur, samkvæmt reglum Samfylkingarinnar. Formaður kjörstjórnar flokksins í Reykjavík, Stefán Benediktsson, hefur tilkynnt Jafnaðarmannafélaginu Rósinni að það fái ekki aðgang að kjörgögnum, eins og óskað hafði verið eftir, þar sem lög flokksins heimili það ekki. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Rósarinnar, fór fram á að fá öll gögn afhent sem tengjast þeirri ákvörðun að taka fjölda félaga í Rósinni af kjörskrá forvals á framboðslista um þarsíðustu helgi. „Samkvæmt grein 6.11 í skuldbindandi reglum Samfylkingarinnar um aðferðir við val á framboðslista ber að eyða kjörgögnum þegar kærufrestur er liðinn, en hann rennur út við lok kosningarinnar,“ segir í svari formanns kjörstjórnar við þeirri beiðni. Sigurður segir að óeðlilegt sé að eyða kjörgögnum um leið og kærufrestur sé úti. Alltaf geti komið til ágreinings og þá megi ekki vera búið að eyðileggja gögn. Sigurður kærði ákvörðun kjörstjórnar um að fella fólkið af kjörskrá, en úrskurðarnefnd staðfesti þá ákvörðun. „Þar með er ekki sagt að ég geti ekki borið ágreininginn undir dómstóla. Ef ég ætlaði að gera það þyrfti ég auðvitað að hafa gögnin undir höndum sem deilan snýst um.“ Stefán Benediktsson segir að ekki sé búið að eyða gögnunum. „Okkur ber hins vegar skylda til þess samkvæmt reglunum. Kjörstjórn ætlar að reyna að halda fund í vikunni og fyrr en það hefur verið gert get ég ekkert sagt um málið.“ Sigurður bendir á að í lögum Samfylkingarinnar segi að fara beri eftir landslögum. Það liggi í hlutarins eðli að hægt sé að bera réttarágreining undir dómstóla og sé ágreiningur megi ekki eyða gögnum.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira