Óttast að breytingar torveldi rannsókn mála BBI skrifar 27. nóvember 2012 20:45 Mynd úr safni.
Ýmis félög sem koma að löggæslu í landinu mótmæla harðlega fyrirhuguðum breytingum á heimildum lögreglu til símahlerana sem fram koma í frumvarpi innanríkisráðherra um breytingar á lögum um meðferð sakamála. Ákærendafélagið telur að eftir breytingarnar verði mjög torsótt fyrir lögreglu að fá heimild til að hlera síma í þágu rannsóknar máls. Daði Kristjánsson, varaformaður ákærendafélagsins, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis. Það eru einkum tvö atriði sem félagið finnur að. „Annars vegar er verið að herða almennt á skilyrðum þess að lögreglu sé unnt að fá úrskurð dómara um símahlerun. Það er verið að bæta við skilyrðum um að ríkir almanna- eða einkahagsmunir séu til staðar," segir Daði. „Hins vegar er verið að taka út undantekningarheimild um að heimilt sé að fá símahlerunarúrskurð þó lágmarksrefsiskilyrði séu ekki uppfyllt. Sú heimild er nauðsynleg vegna vægari afbrota þegar sérstaklega stendur á." Breytingarnar koma til með að torvelda mjög rannsókn mála. „Við teljum það verði mjög torsótt að fá heimild til að hlera síma ef lögregla þarf alltaf að sýna fram á að þessir ríku almannahagsmunir séu í húfi," segir Daði og telur að lögregla muni ekki fá leyfi til hlerana nema í allra alvarlegustu málunum. „Við óttumst að dómstólar munu túlka þessar heimildir mjög þröngt eftir breytingarnar," segir hann og telur mögulegt að pólitísk sjónarmið ráði för í þessu máli. Innslagið allt má nálgast á hlekknum hér að ofan.
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira