Sérfræðingar vakta skólafæðið GAR skrifar 1. desember 2012 08:00 Borgin vill tryggja betur gæði skólamáltíða. Fréttablaðið/Anton
Leggja á aukna áherslu á gæði skólamáltíða í leik- og grunnskólum Reykjavíkur. Áfram verður eldað í hverjum skóla en að því er segir í frétt frá Reykjavíkurborg verða ráðnir sérfræðingar á sviði næringar, matreiðslu og reksturs mötuneyta til nýrrar mötuneytisþjónustu á skóla- og frístundasviði. Einnig verður innleiddur þjónustustaðall mötuneyta fyrir öll eldhús leik- og grunnskóla. Ofangreint samþykkti borgarráð að fengnum niðurstöðum starfshóps sem skoðaði rekstur allra mötuneyta borgarinnar með það fyrir augum að einfalda rekstur, auka gæði og lækka framleiðslukostnað. Aðstaða til framleiðslu matar og mönnun reyndist mjög mismunandi í mötuneytunum. Þau eru rekin sem sjálfstæð rekstrareining með ólíkum áherslum og verklagi. „Slíkt skapar mismunandi þjónustugæði og flækjustig við eftirlit og innköllun rekstrarupplýsinga,“ segir í tilkynningu borgarinnar. Þess vegna hafi starfshópurinn lagt til að stofnuð yrði mötuneytisþjónusta Reykjavíkurborgar sem hefði umsjón með mötuneytismálum á skóla- og frístundasviði. Maturinn yrði eftir sem áður framreiddur á hverjum stað fyrir sig. Í mötuneytum er í boði þjónusta fyrir 19.152 börn og unglinga og 4.405 starfsmenn.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Sjá meira