Innlent

Mark Wahlberg fagnaði Djúpinu með Baltasar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Baltasar Kormákur, Guðmundur Árni Stefánsson og Mark Wahlberg.
Baltasar Kormákur, Guðmundur Árni Stefánsson og Mark Wahlberg.
Kvikmyndinni Djúpinu var fagnað í gær á Thompson hótelinu í Beverly Hills. Þar voru Baltasar Kormákur og Lilja Pálmadóttir, eiginkona hans, ásamt Guðmundi Árna Stefánssyni, sendiherra Íslendinga í Washington, Mark Wahlberg, leikara og samstarfsfélaga Baltasars, og fleiri. Djúpið hefur nú verið sýnd hér heima við góðar vinsældir og jafnframt verið sýnd víða erlendis. Myndin byggir, sem kunnugt er, á sjóslysi sem varð við Vestmannaeyjar árið 1984.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×