Gert að skoða betur hvort balletdansmær fái að sleppa við leikfimi 29. nóvember 2012 14:12 Ballet er mikil og krefjandi hreyfing. Menntamálaráðuneytinu er gert að afla sér frekari gagna um það hvort stúlka fái undanþágu frá leikfimi vegna balletiðkunar sinnar.
Umboðsmaður Alþingis hefur gert menntamálaráðuneytinu að endurskoða synjun sína á því að stúlka, sem æfir ballet fengi að sleppa við skyldunám í íþróttum. Móðir stúlkunnar kvartaði yfir úrskurði mennta- og menningarmálaráðuneytisins en hún kærði málið til ráðuneytisins eftir að skólinn synjaði beiðni konunnar. Með úrskurðinum staðfesti ráðuneytið ákvörðun skólastjóra grunnskóla um að synja beiðni konunnar um að dóttur hennar yrði veitt undanþága frá skyldunámi í íþróttum vegna hættu á álagsmeiðslum. Fram kom að bekkjarsystur stúlkunnar hafði verið veitt undanþága gegn framvísun læknisvottorðs. Því var hins vegar hafnað að unnt væri að leggja læknisvottorð sem móðirin framvísaði vegna dóttur sinnar til grundvallar slíkri undanþágu, meðal annars á þeim grundvelli að vottorðin tvö væru ekki sambærileg. Móðirin taldi að ekki hefði verið gætt samræmis og jafnræðis við ákvörðunartöku í málum stúlknanna tveggja. Settur umboðsmaður Alþingis komst að lokum að þeirri niðurstöðu að ráðuneytið hefði ekki gætt að jafnræðisreglu sem og rannsóknarreglu um að gera ráðstafanir við að afla gagna um málið. Þá helst um læknisvottorð stúlkunnar sem fékk undanþáguna. Umboðsmaður taldi því að málsmeðferð ráðuneytisins hefði ekki verið í samræmi við rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Umboðsmaður taldi jafnframt að ekki hefði verið forsvaranlegt að synja beiðni stúlkunnar um undanþáguna án þess að afla frekari gagna af sérfræðilegum toga. Þar hafði hann í huga að fyrir lá sérfræðilegt mat læknis á því að það gæti skaðað heilsu stúlkunnar að stunda frekari íþróttir í skólanum. Mæltist hann því til þess að beiðni móðirinnar um undanþágu fyrir dóttur sína yrði tekin til endurskoðunar kæmi fram beiðni þess efnis frá henni og að þá yrði tekið mið af sjónarmiðum sem væru rakin í álitinu. Að öðru leyti tók hann ekki afstöðu til þess hvort skilyrði væru til þess að taka beiðnina til greina að hluta eða öllu leyti.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fleiri fréttir ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Sjá meira