Hundurinn slapp ómeiddur - íbúar þurfa að gista annarsstaðar í nótt 16. september 2012 21:00 Frá vettvangi í morgun. MYND / GIG
Um fimmtán íbúar í húsinu í Ofanleiti, þar sem sprenging varð í morgun, leituðu til Rauða Krossins, sem er með höfuðstöðvar skammt frá húsinu. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Rauða Krossins, Teiti Þorkelssyni, fengu íbúarnir að sækja helstu nauðsynjar í dag en þeir þurfa að gista annarsstaðar í nótt. „Þau fengu sér kaffi og hressingu og teppi. Þá var spjallað við þau um atburðinn," segir Teitur. Spurður um andlegt ástand íbúanna segir hann að þeir hafi verið rólegir. „Það voru allir þokkalega rólegir. En við leystum þau út með bæklingum um áfallastreitu þar sem stundum áttar fólk sig ekki á áfallinu fyrr en nokkru síðar," segir Teitur. Eins og greint hefur verið frá þá var einn karlmaður inni í íbúðinni þegar sprengingin varð. Nágrannar mannsins aðstoðuðu hann út úr íbúðinni en hann stóð í lappirnar og var með meðvitund fyrstu mínúturnar eftir sprenginguna. Hann liggur nú þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem honum er haldið sofandi. Hann er í lífshættu. Stöð 2 greindi frá því í kvöld að hundur mannsins hafi verið inni í íbúðinni þegar sprengingin varð. Hundurinn virðist hafa sloppið ómeiddur. Ekki er vitað hvernig sprenginguna bar að. Slökkviliðsmenn sem fréttastofa hefur rætt við í dag sögðu ólíklegt að þarna væri um hefðbundna gassprengingu að ræða. Krafturinn væri bæði of mikill og þeim fylgir sjaldnast svona mikill eldsvoði eins og í þessu tilviki. Krafturinn var gríðarlegur, veggir gengu til og brak og glerbrot þeyttust tugi metra út úr íbúðinni. Heill gaskútur fannst í íbúðinni og er ekki lokið skotið fyrir það að fleiri kútar hafi verið í íbúðinni, sem hafa þá hugsanlega sprungið. Málið er í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Sjá meira