Enski boltinn

Mancini: 101 prósent líkur á því að Balotelli verði áfram hjá City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Roberto Mancini og Mario Balotelli,
Roberto Mancini og Mario Balotelli, Mynd/Nordic Photos/Getty
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, er maður fyrirgefningarinnar ef marka má stormasöm sambönd hans við leikmenn eins og Carlos Tevez og Mario Balotelli. Mancini hefur tekið þá báða í sátt eftir að hafa úthúðað þeim fyrr á tímabilinu og nú hefur ítalski stjórinn gefið það út að Balotelli verði áfram hjá City.

Fjölmiðlar á Ítalíu hafa verið að skrifað um það að AC Milan og Manchester City væru að ræða skipti á Zlatan Ibrahimovic og Mario Balotelli en Mancini þvertekur fyrir það í viðtali við ítalska stórblaðið

Gazzetta dello Sport.

„Ibra er frábær leikmaður en ég held að AC Milan hafi engan áhuga á því að selja hann. Ég ítrekað þetta því enn á ný: Það eru 101 prósent líkur á því að Balotelli verði áfram hjá Manchester City," sagði Roberto Mancini.

Mario Balotelli var með 13 mörk og 1 stoðsendingu í 23 leikjum með Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Eina stoðsendingin var heldur betur mikilvæg því hann lagði upp sigurmark Sergio Agüero á fjórðu mínútu í uppbótartíma í lokaleiknum. Það mark tryggði City titilinn í fyrsta sinn í 44 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×