Erfitt að spyrja um gleraugun á nefinu 26. nóvember 2012 06:00 Erfiðara er að eiga við suma vöruflokka en aðra við tollafgreiðslu. Oft er ráðvendni farþega það eina sem hægt er að reiða sig á. Fréttablaðið/HAG
Sömu tollareglur gilda um vörur sem keyptar eru á brottfararsvæði Leifsstöðvar og um varning sem keyptur er erlendis eða í komuverslun. Spurður hvort slíkt gildi einnig um vörur eins og gleraugu segir Kári Gunnlaugsson, yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli, að svo sé en líka um aðrar vörur sem kaupa má í Leifsstöð, til dæmis úr eða skartgripi. Oft sé þó erfitt fyrir tollverði að sjá til þess að greidd séu viðeigandi gjöld af slíkum vörum. „Þetta er eitt af þeim málum sem erfitt er að eiga við. Eiga tollverðir að stöðva fólk og spyrja hvort gleraugu hafi verið keypt í ferðinni?“ Kári tekur þó skýrt fram að fólki beri alltaf að framvísa öllum vörum sem fara yfir gjaldfrelsismörk, sem eru 32.500 krónur fyrir einstaka hluti. Kjartan Kristjánsson, eigandi Optical Studio, segir að honum finnist ekki rétt að taka gleraugu sérstaklega fyrir í þessu samhengi. Í verslun hans séu vörur á svipuðu verðbili og mörgum öðrum verslunum í flugstöðinni, sem selja meðal annars fatnað, úr og áfengi. „Það er öllum frjálst að versla í flugstöðinni fyrir hvaða upphæð sem er. Viðkomandi á það svo við sjálfan sig, ef farið yfir mörkin [32.500 krónur], hvort hann tilkynnir vöruna eður ei. Ég bendi mínum viðskiptavinum á bæklinga frá tollinum þar sem allar upplýsingar koma fram.“ Kjartan segir að flest innkaup í hans verslun séu undir fyrrnefndum mörkum. Þá bendir hann á að þrátt fyrir að viðskiptavinir gefi fram viðkomandi vöru við komuna til landsins geti verið um nokkurn sparnað að ræða. - þj
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Fleiri fréttir Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira