Bókunum ætlað að þjálfa börn í einbeitingu og athygli 8. nóvember 2012 16:25 Myndin sem Soffía tók og birti á Facebook-síðu sinni.
Bókaforlagið Setberg segir engar bækur hafnar yfir gagnrýni og segir það sína von að sú gagnrýni verði heiðarleg, réttmæt og sanngjörn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Setbergi þar sem tilurð bókanna Blá bókin mín og Bleika bókin mín, sem eru útlendar eru útskýrðar. Það var listamaðurinn Soffía Gísladóttir sem vakti athygli á sérkennilegum muni bókanna. Þannig eru stúlkur sýnda að þrífa í Bleiku bókinni minni á meðan strákarnir fara út í geim. Málið vakti töluverða athygli á Facebook en hátt í 1000 manns hafa deilt gagnrýni Soffíu. Í yfirlýsingu Setbergs segir meðal annars: „Setberg bókaforlag hefur á 60 árum gefið út 850 bókartitla, þar af um 400 barna- og unglingabækur. Gefur augaleið að ekkert verður ályktað um skoðun útgefandans á mönnum og málefnum út frá öllum þessum bókum, svo mismunandi eru þær. Vegna umræðu um kynjamismun í tengslum við Bleiku bókina mína og Bláu bókina mína, sem eru barnabækur með þrautum, gátum og límmyndum, er rétt að taka fram að þær hafa notið vinsælda víða um lönd, s.s. í Bretlandi, Kanada og upprunalandinu Ástralíu. Þess vegna eru þær gefnar út hér á landi." Svo segir að í hvorri bók sé vissulega ætlað að höfða til annars kynsins, önnur er bleik fyrir stúlkur, hin blá fyrir stráka, og þær eru að efni til mismunandi og ekki að fullu sambærilegar. „Í Bleiku bókinni minni eru kaflar um orð, tölur og leiki, dýr, liti og form, leikföng og loks um að heima sé best. Í Bláu bókinni minni eru kaflar um sveitina, villt dýr, bíla, stór farartæki, risaeðlur og geiminn. Bókunum er ætlað að þjálfa börn í einbeitingu og athygli," segir svo í tilkynningunni. Svo endar hún á þessum orðum: „Bleika bókin mín og Bláa bókin mín eru ekki frekar en aðrar bækur, hvort sem þær eru ætlaðar fullorðnum eða börnum, hafnar yfir gagnrýni. Það er eina von forlagsins að sú gagnrýni verði heiðarleg, réttmæt og sanngjörn."
Tengdar fréttir Strákar til stjarnanna - stelpur til skúringa "Ég ætlaði hugsanleg að kaupa svona bók, hugmyndin er góð,“ segir Soffía Gísladóttir listakona, sem varð var við heldur úreltar kynjamyndir þegar hún var að skoða barnabækurnar Bláa bókin mín og Bleika bókin mín. 8. nóvember 2012 14:05 Mest lesið Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Innlent Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Innlent „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent „Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Innlent Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Innlent Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Erlent Eldur kviknaði í fjölbýli í Úlfarsárdal Innlent Guðmundur Ingi snýr aftur á þing í dag Innlent Fleiri fréttir Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Bein útsending: Ný áætlun fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila Flestir telja veikindarétt og starfsöryggi ríkari hjá hinu opinbera Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Guðmundur Ingi snýr aftur á þing í dag „Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Eldur kviknaði í fjölbýli í Úlfarsárdal Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Galdrakarlinn í AUS Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Hellisheiði er lokuð „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ „Við erum ekki hrædd“ Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Uppnám á flugvellinum og fyrsti kvenkyns keppandinn Handtekinn á sjöunda tímanum í gær grunaður um ölvunarakstur Stríð, þjóðaratkvæðagreiðsla og stafræn heilbrigðisþjónusta „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Sjá meira
Strákar til stjarnanna - stelpur til skúringa "Ég ætlaði hugsanleg að kaupa svona bók, hugmyndin er góð,“ segir Soffía Gísladóttir listakona, sem varð var við heldur úreltar kynjamyndir þegar hún var að skoða barnabækurnar Bláa bókin mín og Bleika bókin mín. 8. nóvember 2012 14:05