Þrír dæmdir fyrir að hylma yfir með stórtækum bensínþjófi 28. nóvember 2012 11:12
Þrír karlmenn, tveir Litháar búsettir hér á landi og einn Íslendingur, voru dæmdir fyrir hylmingu í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Allir keyptu þeir eldsneyti af karlmanni sem borgaði fyrir það með stolnu fyrirtækjakorti. Alls sveik hann út eldsneyti fyrir 4,6 milljónir króna á tveggja ára tímabili. Sjálfur var hann dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í september síðastliðnum. Maðurinn seldi mönnunum þremur dísilolíu í sjálfsafgreiðslu Orkunnar við Kænuna í Hafnarfirði. Maðurinn seldi mönnunum lítrann á undir hálfvirði, eða á hundrað til hundrað og þrjátíu krónur lítrann. Mennirnir áttu flestir nokkrum sinnum í viðskiptum við bensínþjófinn, en þeir sögðu að hann hefði útskýrt braskið með þeim hætti að fyrirtæki sem hann ætti væri að fara á hausinn og hann vildi fá sem mest út úr kennitölunni með því að nýta fyrirtækjakortið með þessum hætti. Dómari telur þetta ekki sannfærandi skýringu og telur að mennirnir hljóti að hafa vitað betur. Þeir voru því allir dæmdir í 30 daga skilorðsbundið fangelsi en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum, haldi þeir almennt skilorð.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira