Skráði lögheimili sitt í Ráðherrabústaðinn og braust fjórum sinnum inn 28. nóvember 2012 13:57
Karlmaður um fertugt hefur verið ákærður fyrir að brjótast fjórum sinnum inn í Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu í miðbæ Reykjavíkur. Maðurinn braust fyrst inn í ágúst árið 2011 en þá braut hann rúðu í aðalhurð hússins með grjóti. Aðferðin breyttist svo lítillega eftir því sem hann braust oftar inn, þannig braut hann einu sinni rúðu í aðalhurð hússins með járnstykki sem og rúðu í útihurð á bakhlið hússins. Síðasta innbrotið var í ágúst síðastliðnum, en þá braut hann rúðu í kjallara hússins. Í öll skiptin kom lögreglan á vettvang skömmu síðar, og í öll skiptin dvaldi maðurinn þar þegar lögreglu bar að. Maðurinn, sem hefur margsinnis komist í kast við lögin, meðal annars fyrir ofbeldisbrot, er heimilislaus. Fyrir síðustu jól tók hann reyndar upp á því að skrá lögheimili sitt í Ráðherrabústaðinn, en staðreyndin er sú að hver sem er getur skráð lögheimili sitt hvar sem er, svo lengi sem það er í íbúðarhúsnæði. Eftir að maðurinn hafði ítrekað brotist inn í húsið breytti þjóðskrá skráningu mannsins á síðasta ári. Hann er því óstaðsettur í hús samkvæmt ákæruskjali. Þá vekur athygli að forsætisráðherrann sjálfur, Jóhanna Sigurðardóttir, gerir skaðabótakröfu á hendur manninum, en krafist er tæplega 800 þúsund krónur í skaðabætur. Það eru aftur á móti tveir aðrir aðilar sem gera kröfuna fyrir hönd forsætisráðherrans, sem ber ábyrgð á bústaðnum. Það hrekkur þó skammt miðað við þá fjárhæð sem maðurinn telur ríkið skulda sér. Í frétt um málið á Stöð 2 á síðasta ári kom fram að maðurinn álítur að ríkið skuldi honum svimandi háa upphæð - og vildi hann með þessu athæfi vekja athygli á því en hann hefur gert kröfu á hendur ríkisins upp á 14,7 milljónir evra, sem jafngildir röskum tveimur milljörðum króna. Maðurinn mætti ekki í þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur morgun, og var málinu því frestað þar til hægt er að hafa uppi á manninum.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Innlent Fleiri fréttir Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Sjá meira