Innlent

Ábyrgðin hjá húsfélögunum

Bílarnir við Veghús fá að standa á bílastæðinu þangað til húsfélagið óskar eftir aðstoð borgaryfirvalda.
Bílarnir við Veghús fá að standa á bílastæðinu þangað til húsfélagið óskar eftir aðstoð borgaryfirvalda.
Nokkrir númerslausir bílar hafa staðið óhreyfðir á bílastæðaplani við Veghús í Grafarvogi. Lesandi Fréttablaðsins benti á bílana og sagði þá hafa staðið á planinu í nokkur ár.

Ekki fengust upplýsingar um þessa tilteknu bíla en borgaryfirvöldum er almennt ekki heimilt að fara inn á lóðir hjá fólki og hirða númerslausa bíla að eigin frumkvæði. Hins vegar geta húsfélög fjölbýlishúsa óskað eftir því að borgaryfirvöld losi þau við númerslausa bíla á lóð þeirra.

Fyrsta skrefið hjá borgaryfirvöldum er að líma miða á bifreiðina, þar sem eigendum er gefinn frestur til að fjarlægja bílinn. Ef ekkert gerist áður en fresturinn rennur út er bíllinn sóttur af Vöku. Þangað geta eigendur farið og leyst bílinn út, annars er hann seldur á uppboði. - ktg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×