Bleikjan bjargaði Blöndutúr 28. júní 2012 04:00 Fallegur og gjöfull veiðistaður á svæði IV í Blöndu. Þessi þrettán punda hrygna veiddist þar í júní fyrir tveimur árum. Fréttablaðið/Garðar
Sjö manna holl sem var við veiðar á tveimur efstu svæðum Blöndu um síðustu helgi kom þaðan laxlaust. Bleikjan í Rugludalshyl bjargaði andliti hópsins. Veiðar hófust á þremur efstu svæðum Blöndu í síðustu viku. Opnunarhollin á svæðum III og IV fengu tvo laxa hvort. Sjö manna hópi sem kom þar á eftir og var við veiðar á báðum þessum svæðum í þrjá daga varð ekki eins vel ágengt. Mannskapurinn kom sér fyrir í veiðihúsinu á Eiðsstöðum síðdegis á föstudag. Til skiptanna voru sex stangir; þrjár á svæði III sem er neðan útfalls Blönduvirkjunar og þrjár á svæði IV sem er ofan útfallsins og því tær þegar miðlunarlón virkjunarinnar er ekki á yfirfalli. Frést hafði af því að lax hefði veiðst fyrstu tvo daga tímabilsins á hinum geysifallega stað Breiðunni á svæði IV og síðan tveir laxar neðst á svæði III. Skemmst er frá því að segja að fyrstu tvær vaktirnar urðu menn lítið varir við lax. Einn taldi sig þó hafa heyrt máttugt laxaskvamp í Skurðinum, sem er efsti veiðistaðurinn á svæði III. Hnippt var í færið hjá öðrum í Sandhólahyl en taldi sá að þar hefði urriði verið á ferð. Ofurhugar í leiðangurFyrsta kvöldið sögðu reynslumeiri Blöndumenn í hollinu þeim yngri sögur af bleikju sem hafa mætti ef menn legðu á sig strangt ferðalag efst á svæði IV; upp í Rugludalshyl. Sá galli væri á gjöf Njarðar að ganga þyrfti ofan í snarbratt gil ofan af Eyvindarstaðaheiði – og upp þaðan aftur. Var ekki á ungu mönnunum að skilja að það yrði mikil fyrirstaða. Varð úr að ungliðadeildin hélt fyrsta morguninn glaðbeitt upp í Rugludal. Sögðust þremenningarnir mundu snúa aftur í síðasta lagi klukkan tvö. Og væru þeir ekki komnir í hús klukkan fimm væri hinum velkomið að telja þá af og skipta með sér bjórnum þeirra og öðrum lausamunum. Á meðan æskulýðurinn var á fjallinu huguðu hinir miðaldra að laxi. Sólin skein í heiði og mýið fór á kreik. Laxinn lét hvorki sjá sig né heyra. Krökkt af bleikjuFraman af hádegishléinu spurðist ekkert til Rugludalsmanna. Loks þegar klukkan var langt gengin í fjögur sást mikil rykmökkur þokast eftir veginum ofan af Eyvindarstaðaheiði. Nokkru síðar renndu piltarnir í hlað á Eiðsstöðum. Meginfréttirnar ofan úr Rugludal voru þær að þar væri pakkað af vænni bleikju á efstu veiðistöðunum. Komu drengirnir með fjögur sýnishorn því til sönnunar. Þeir voru sammála um að sjaldan hefðu þeir lent í annarri eins þrekraun og að ganga brattann upp á heiðina aftur. En ánægðir voru þeir og í sólskinsskapi. Laxinn sýnir sig og tekurDraga fór til tíðinda á næstu kvöldvakt. Þá sást fiskur í einum hyljanna um mitt svæði IV. Áhöld eru um nafnið á staðnum þar sem veiðikortinu ber ekki saman við aðstæður í Blöndudal. En staðurinn er merktur númer 410 og þar voru að minnsta kosti fimm laxar þetta laugardagskvöld. Fyrir þá voru settar margar flugur sem þeir litu vart við. Lax hélt sig í þessum hyl áfram en ekki tókst þar betur upp á næstu vöktum. Á sunnudagsmorgun sást loks lax á Breiðunni. Hann tók þegar fimm mínútur lifðu af vaktinni. Veiðimaðurinn rak upp gól og hagræddi sér glottandi á bakkanum. Þá var fiskurinn af aftur. NEI! Hirti línuna allaÍ framhaldinu tókst að setja í þrjá laxa neðarlega og neðst á svæði III. Allir þessir fiskar slitu sig lausa. Einn risalax lét ekki nægja að rífa sig af agninu heldur straujaði niður þungan strauminn með varnarlausan veiðimanninn titrandi á bakkanum löngu eftir að öll línan var farin út af hjólinu og horfin í heilu lagi út í Blöndu. gar@frettabladid.is
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Fleiri fréttir Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Sjá meira