Eldhætta af völdum brunavarnabúnaðar 28. júní 2012 05:00 Galli hefur komið upp í neyðarútgönguljósum. Mannvirkjastofnun hefur tvisvar á síðustu átta árum innkallað neyðarlampa.fréttablaðið/anton
Neyðarlínunni barst tilkynning um eld á þriðju hæð í húsi við Laugaveg í Reykjavík á þriðjudagskvöld. Slökkvilið var sent á staðinn og slökkti og reykræsti. Þar var ekki mikill eldur en töluverður reykur. Talið er að kviknað hafi í neyðarútgangsljósi í húsinu. Mannvirkjastofnun sér um að votta eldvarnatæki og hefur áður þurft að hafa „afskipti" af neyðarútgangsljósum. Björn Karlsson, forstjóri stofnunarinnar, segir að starfsmenn hennar muni óska upplýsinga um umræddan öryggisbúnað. „Ef við teljum ástæðu til þá sendum við okkar mann til að skoða fyrirbærið," segir Björn. „Núna kemur þetta upp og við munum biðja um að fá þetta ljós sem brann í fyrradag og annað nýtt svo við getum rannsakað og athugað hvort ástæða sé fyrir innköllun." Árið 2004 komu upp nokkur tilvik þar sem neyðarlampar brunnu. Lampar brunnu til að mynda á Heilsuverndarstöðinni, á Þjóðarbókhlöðunni, B&L, á leikskóla og í framhaldsskóla. Ekki var um mjög alvarleg tilvik að ræða en lamparnir voru innkallaðir í samráði við heildsala. „Fyrsta innköllunin var árið 2004, þá höfðu orðið nokkrir brunar," segir Birgir Ágústsson, rafmagnstæknifræðingur hjá Mannvirkjastofnun. „Sumt af þessu varð nú þannig að lampinn brann bara." „Við fórum að pressa á að fá einhverja vitneskju um þessa bruna. Loks sagði framleiðandinn að það væri galli í þétti, ef ég man rétt," rifjar Birgir upp. „Það gilti fyrir lampa með ákveðin framleiðslunúmer. Það var innkallað í samvinnu við umboðsaðilann hér." „Síðan, árin 2008 og 2009, kom aftur upp tilvik í lampa af þessari gerð, nema það var nýrri lampi en okkur hafði verið sagt að væri gallaður." Þá var aftur kannað hvað olli brunum og á endanum voru þær vörur innkallaðar. Birgir segist ekki vita hvort lampinn sem brann á Laugavegi á þriðjudag hafi borið umrædd framleiðslunúmer. „Það þarf ekkert endilega að vera að um einhvern sérstakan galla sé að ræða. Nánast allt sem notað er getur bilað." Bjarni Kjartansson hjá eldvarnaeftirliti höfuðborgarsvæðisins segir enga ástæðu til þess að treysta ekki öryggisbúnaði bygginga. „Þar sem er rafmagn, þar getur kviknað í. Það er einfaldur sannleikur. Hins vegar er það kannski kaldhæðnislegt að neyðarlampar brenni." birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Fleiri fréttir Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Sjá meira