Níddist á börnum og borgaði þeim fyrir Stígur skrifar 30. nóvember 2012 08:00
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær mann á fimmtugsaldri í sjö ára fangelsi fyrir að níðast kynferðislega á tveimur börnum, dreng og stúlku, um árabil. Fram kemur í dómnum að eftir því sem á leið hafi maðurinn farið að borga báðum þolendum fyrir samræðið, um fimm til tíu þúsund krónur í hvert sinn. Dómurinn er með þeim þyngstu sem fallið hefur á Íslandi fyrir kynferðisbrot. Aðeins þrír átta ára fangelsisdómar eru þyngri. Stúlkan sem maðurinn braut gegn er í dag hálfþrítug og pilturinn um tvítugt. Brotin voru hins vegar framin frá því fyrir síðustu aldamót og gegn piltinum allt til ársins 2010, þegar hann var átján ára og sagði loks frá ofbeldinu. Stúlkan er systurdóttir konu mannsins. Pilturinn og sonur mannsins voru vinir frá sex ára aldri. Maðurinn var handtekinn í nóvember 2010 og sat í gæsluvarðhaldi í rúma viku. Framlengingu þess á grundvelli almannahagsmuna var hafnað. Hann neitaði alla tíð sök og framburður hans var stöðugur. Hins vegar er byggt á jafnstöðugum framburði beggja brotaþolanna við sönnunarmatið, og eins mati sálfræðinga sem telja bæði piltinn og stúlkuna glíma við mikla erfiðleika sem rími við frásögn þeirra af langvinnri misnotkun. Maðurinn er því fundinn sekur um að hafa misnotað drenginn frá sjö til tíu ára aldurs, og aftur frá fjórtán til átján ára aldurs og haft við hann munnmök og endaþarmsmök. Þá er hann sakfelldur fyrir að hafa haft munnmök og samræði við stúlkuna þegar hún var tólf til fimmtán ára. Þolendurnir hafa báðir átt mjög erfitt vegna ofbeldisins. Stúlkan er óvinnufær vegna kvíðaröskunar sem sálfræðingur telur öruggt að sé afleiðing misnotkunarinnar. Pilturinn fór út af sporinu, ánetjaðist fíkniefnum og á erfitt með að skynja líkama sinn rétt. Maðurinn er dæmdur til að greiða stúlkunni 1,6 milljónir í bætur og piltinum þrjár milljónir.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira