Innlent

Kveikt á Oslóartrénu á sunnudaginn

Oslóartréð við Austurvöll er glæsilegt að vanda. Þetta er tréð sem sett var upp árið 2009 en það var kveikt í því í Búsáhaldarbyltingunni svokölluðu.
Oslóartréð við Austurvöll er glæsilegt að vanda. Þetta er tréð sem sett var upp árið 2009 en það var kveikt í því í Búsáhaldarbyltingunni svokölluðu. Mynd/Stefán Karlsson
Ljósin á Oslóartrénu verða tendruð á sunnudaginn á milli klukkan 16 og 17. Íbúar Oslóar færðu Reykvíkingum fyrsta grenitréð að gjöf fyrir rúmum sextíu árum en tréð hefur ævinlega verið sett upp á Austurvelli. Borgarbúar hafa lengi fagnað þessari vinargjöf fyrsta sunnudag í aðventu með hátíðlegum söng og skemmtilegum uppákomum.

Dagskráin hefst klukkan 15:30 með leik Lúðrasveitar Reykjavíkur en í kjölfarið tekur Dómkórinn við og syngur nokkur lög undir stjórn Kára Þormar. Dag Wernø Holter sendiherra Noregs á Íslandi og Tone Tellevik Dahl formaður heilbrigðis- og félagsmálanefndar Oslóarborgar afhenda Reykvíkingum tréð að gjöf rétt um kl.16. Borgarstjóri, Jón Gnarr flytur þakkarávarp og hinn 6 ára norsk-íslenski Jörundur Ísak Stefánsson fær þann heiður að tendra ljósin á trénu

Aðrir góðir gestir birtast einnig á sviðinu við Austurvöll. Skáldið Bragi Valdimar Skúlason frumflytur kvæði um Stúf og Karíus og Baktus kíkja við ofan úr Þjóðleikhúsi en þeir hlakka mikið til jólanna. Þá líta, Hurðaskellir, Gluggagægir og Stúfur við, en þeir hafa laumað sér í bæinn til að segja börnunum sögum og syngja jólalög.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Eimskip hafi frá upphafi flutt Oslóartréð til Reykjavíkur, borgarbúum að kostnaðarlausu. „Borgarstjóri, Jón Gnarr tók þátt í að fella tréð við í Solemskogen við Grefsen í Osló þann 7. nóvember s.l. en það var flutt frá Fredrikstad til Reykjavíkur. Tréð er rúmlega 12 metra hátt og skreytt fögrum ljósum, jólastjörnu og jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra en í ár er það Stúfur sem prýðir hann.

Stúfur er sjöundi óróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélagsins og rennur allur ágóði af sölu hans til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Í óróanum fer saman íslenskur menningararfur, ritsnilld og hönnun - ásamt mikilsverðu málefni. Bragi Valdimar Skúlason og Þórunn Árnadóttir leggja félaginu lið með túlkun sinni á Stúfi - Bragi Valdimar yrkir málið og Þórunn í stálið en nýtt kvæði um Stúf verður frumflutt á Aðventuhátíðinni.

Dagskrá hátíðarinnar verður túlkuð á táknmáli, heitt kakó og kaffi mun verma kalda kroppa og bílastæðahúsið í Ráðhúsinu verður opið til að auðvelda gestum aðgengi að hátíðarsvæðinu. Kynnir er Gerður G. Bjarklind. "




Fleiri fréttir

Sjá meira


×